Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. mars 2026 23:15 Philipp Raimund neitaði að stökkva af því að hann treysti ekki aðstæðunum í Osló. Getty/Alex Pantling Philipp Raimund sá engan tilgang í að taka óþarfa áhættu í skíðastökkskeppninni á Holmenkollen í Osló á sunnudag. „
Ég stekk ekki. Ég geri það ekki í þessum ruglastæðum,“ sagði Þjóðverjinn Raimund við mótshaldara þegar ákvörðunin var tekin eins og sjá má hér fyrir neðan. Þýska stjarnan neitaði að stökkva í fyrri umferð eftir nokkur hættuleg atvik hjá öðrum stökkvurum. Hann er nýkominn heim frá Vetrarólympíuleikunum þar sem hann vann gullverðlaun. Szok! Philipp Raimund nie zamierza skakać w zwariowanych warunkach w Oslo.Tym samym wpuszcza do konkursu Kamila Stocha. Skoki narciarskie stają dziś na głowie 🙃#skijumpingfamily #Oslo pic.twitter.com/M3oaKTtts2— Eurosport Polska (@Eurosport_PL) March 15, 2026 Engin ástæða til að hætta öllu saman „Ég sat þarna uppi og horfði á stökk liðsfélaga míns, Felix Hoffmann, og tók skyndiákvörðun. Ég hef þegar náð öllu sem ég vildi á þessu tímabili og það var engin ástæða til að hætta öllu saman með einu, eða kannski tveimur, stökkum,“ sagði Raimund við norska ríkisútvarpið. Hann segir að hann hafi ekki verið hræddur, heldur hafi honum einfaldlega ekki fundist hann geta stokkið við þær aðstæður sem voru. Hugsaði um kærustuna mína „Ég hugsaði um kærustuna mína. Það fyrsta sem ég hugsaði var: hvað myndi kærastan mín segja? Það fyrsta sem kom upp í hugann var að hún sagði alltaf að það mikilvægasta væri að ég væri öruggur og lendi heill á húfi, sama hvernig veðrið er,“ hélt Raimund áfram. Þjóðverjinn segir að hann hafi líka hugsað til fjölskyldunnar. „Það eru margir sem vilja fá mig heim líka. Mér fannst ekki nauðsynlegt að hætta neinu núna,“ sagði Raimund. „Þetta sýnir að hann er stöðugt að meta áhættuna. Það er enginn sem vill sleppa heimsbikarmóti. Þetta er þroskað af honum,“ sagði norski skíðastökkvarinn Kristoffer Eriksen Sundal við NRK. Oft óþægilegt að stökkva í vindi „Það er oft óþægilegt að stökkva í vindi. Ef þú ert ekki alveg öruggur þegar þú sleppir slánni, þá er enginn tilgangur með að stökkva,“ sagði Sundal. Aðstæður voru afar erfiðar í Holmenkollen á sunnudag. Þjóðverjinn Felix Hoffmann var einn þeirra sem lentu í miklum vandræðum í loftinu. Seinni umferðinni var síðan aflýst og úrslit úr fyrri umferð standa. This is what the Olympics is all about - pure, unbridled joy ❤️Philipp Raimund's underdog story:— Never competed at the Olympics 🙅♂️— Never won an individual World Cup title 🚫— Has previously said he's scared of heights 😨He's now an Olympic gold medalist. pic.twitter.com/OYOlm5chxT— DW Sports (@dw_sports) February 10, 2026 Mótsstjórinn Sandro Pertile segir við NRK að veðurspár hafi sýnt að aðstæður myndu versna. Þrýstum aldrei á keppendur að stökkva „Við komumst í gegnum fyrri umferðina án þess að nokkur dytti, það er alltaf forgangsatriði hjá okkur. Í hléinu á milli umferða var nánast ómögulegt að gefa grænt ljós,“ sagði Pertile. „Þegar við reyndum að hefja seinni umferðina höfðum við litla glugga til að gefa grænt ljós, heldur hann áfram,“ sagði Pertile. Pertile segir að hann virði ákvörðun Raimunds um að stökkva ekki. „Við þrýstum aldrei á keppendur að stökkva, það er eingöngu þeirra ákvörðun. Ef honum leið ekki vel, þá tók hann rétta ákvörðun,“ sagði Pertile.
Skíðaíþróttir Mest lesið Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport „Það er gott að ná að taka einn titil frá þeim“ Sport Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Fótbolti Uppgjör: Ísland - Portúgal 62-60 | Frábær sigur Íslands Körfubolti PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Fótbolti Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Fótbolti „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Fótbolti Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Fótbolti Gamli Valsarinn valinn í danska landsliðið Fótbolti Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City Fótbolti Fleiri fréttir Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ „Það er gott að ná að taka einn titil frá þeim“ „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Dani: Við erum að taka næstu skref Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Sigrún: Það var mjög mikið sem gekk upp í dag Uppgjör: Ísland - Portúgal 62-60 | Frábær sigur Íslands Norska ævintýrið endaði með martröð í Portúgal Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn FIFA neitar að færa HM-leiki Írans til Mexíkó Strákarnir okkar slógu í gegn í Smáralindinni Gamli Valsarinn valinn í danska landsliðið Isak sást á æfingu Liverpool Guðrún ætlar að slást við Fanneyju og Thelmu um titilinn Formúla 1 orðin „rafhlöðu heimsmeistaramótið“ Besta sætið: Endurkoma í uppsiglingu í Meistaradeildinni Þurfa á fullkomnu kvöldi að halda „Fínt að fá svona langa pásu á milli leikja“ „Allt of snöggur og óvæntur endir“ Hægt að hitta handboltahetjurnar í dag Tvær breytingar á hópnum fyrir kvöldið Kemur alltaf í Þór Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Gefa Gunnari tilgang Enginn slaki gefinn Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Hótar eigin leikmönnum og þjálfurum Sjá meira