Sport

Hefndi fyrir tap Hákonar og stóð uppi sem meistari

Aron Guðmundsson skrifar
Vitali gerði afskaplega vel í erfiðum bardaga gegn Ali Albazi og stóð upp sem meistari
Vitali gerði afskaplega vel í erfiðum bardaga gegn Ali Albazi og stóð upp sem meistari Samsett

Vitali Korshak úr Reykjavík MMA gerði sér lítið fyrir og sigraði Ali Albazi er kapparnir mættust í bardagabúrinu á vegum Caged Steel í gærkvöldi og hefndi þar með fyrir ósigur liðsfélaga síns hér heima undir lok síðasta mánaðar. 

Bardagi Vitali og Ali  var háður í áhugamannaflokki og var meistarabeltið í léttivigtarflokki Caged Steel undir. Albazi með góða reynslu af því að mæta bardagaköppum frá Íslandi, hann hafði betur gegn Hákoni Erni Arnórssyni á Glacier Fight Night undir lok síðasta mánaðar og hafði fyrr á ferli sínum lagt Baldur Sigurðsson að velli. 

Bardaginn Vitali og Ali var afar jafn og skiptust kapparnir tveir á að eiga sín móment. Vitali gaf gjörsamlega allt sitt í bardagann og náði mikilvægum fellum á Ali í þriðju og síðustu lotunni. 

Svo fór að Vitali hafði betur gegn Ali á dómaraúrskurði og sá til þess að sigurganga Albazi gegn bardagaköppum frá Íslandi var á endastöð komin. Virkilega vel að verki staðið hjá þessum öfluga bardagakappar úr Reykavík MMA sem hefur nú unnið alla þrjá bardaga sína til þessa í áhugamannaflokki. 

Þá er Jhoan Salinas enn ósigraður á sínum atvinnumannaferli eftir að hafa haft betur gegn Will Gibson í bardaga sem fór í allar þrjár loturnar og Jhoan tók á einróma dómaraúrskurði.

Þá mætti Tiago Oliveira, Senegalanum Franklin Esoe sem endaði á að hafa betur á einróma dómaraúrskurði eftir að bardaginn hafði farið alla leið. 

Haraldur Arnarson mætti Andy Baker og var í leit að sínum fyrsta sigri á atvinnumannaferlinum á meðan að Baker var að taka þátt í sínum fyrsta bardaga á sínum atvinnumannaferli. Haraldur byrjaði bardagann vel og náði að vanka Baker sem endaði þó á því að snúa bardaganum sér í vil og klára Harald með hengingu.  

Haraldur er í leit að sínum fyrsta sigri á atvinnumannaferlinum í fjórum bardögum á meðan að um er að ræða fyrsta atvinnumannabardaga Andy Baker. Þá mætir Tiago Oliveira, Franklin Esoe

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×