Fara fram á lögbann á Isavia Agnar Már Másson skrifar 13. mars 2026 23:23 Isavia lét loka verslun Rammagerðarinnar en forsvarsmenn verslunarinnar segja það hafa verið ólögmætt, enda þurfi sýslumann til þess. Vísir/Vilhelm Verslunarmenn í Rammagerðinni segjast ætla að fara fram á lögbann á Isavia þar sem ríkisfyrirtækið hafi lokað verslun Rammagerðarinnar á Keflavíkurflugvelli í leyfisleysi. Isavia telur Rammagerðina skulda í leigu en Rammagerðin segir forsendur leigusamningsins löngu brostnar. „
Það er ekkert annað í stöðunni hjá okkur en að fara beinustu leið til sýslumanns á mánudag og biðja um lögbann,“ segir Lydía Kims, framkvæmdastjóri Rammagerðarinnar, í samtali við Vísi. „Og biðja um lögregluaðstoð eða þess háttar til þess að hindra þennan framgang,“ heldur Lydía áfram. Nú sé verslunin opin á ný eftir að kaupmennirnir leituðu til héraðsdómara. Hún sat í miðjum bréfaskrifum til stjórnarformanns Isavia þegar blaðamaður sló á þráðinn til hennar. Í grófum dráttum vill Isavia meina að Rammagerðin, sem er elsti leigutakinn í Fríhöfninni, skuldi leigu en Rammagerðin bendir á að Isavia hafi ekki staðið við sinn hlut samningsins auk þess sem forsendur leigusamningsins séu brostnar; farþegafjöldi sé talsvert undir væntingum, Rammagerðin hafi fengið plássið sitt afhent allt of seint, framkvæmdir hafi staðið yfir í kringum verslunina um langan tíma og nú sé búið að koma fyrir bakaríi fyrir framan búðina sem ekki var gert ráð fyrir áður. Isavia lét loka verslun Rammagerðarinnar en forsvarsmenn verslunarinnar segja það hafa verið ólögmætt, enda þurfi sýslumann til þess.Aðsend Brostnar forsendur Fyrirtæki í fríhöfninni þurfa að vinna útboð til þess að fá úthlutað pláss á fríhafnarsvæðinu og Lydía rekur söguna af því þegar Rammagerðin vann síðasta útboð árið 2023 og átti að opna nýja og endurbætta verslun sama ár. „Þá verða miklir flugeldar í Hörpu og farþegaspár lagðar fram og ákveðin kort af aðstæðum á flugvellinum þar sem þarna verður stórkostlegt kauphallarsvæði og mikið fjör eftir Covid,“ segir Lydía. „Og við bjóðum leigu, háa leigu, réttilega.“ Þannig fengu þau leigusamning sem átti að taka gildi 1. október 2023. „En eftir sem áður þá dregst það og við fáum ekki það rými afhent fyrr en í júlí 2024,“ segir hún. Á meðan á framkvæmdum stóð hafi Rammagerðin þurft að starfa í bráðabirgðabásum á miðju gólfi, en Lydía segir að Isavia hafi samt innheimt fulla leigu frá fyrsta degi. Þegar verslunin loks opnaði hafi skipulaginu á svæðinu svo verið breytt. Bakaríi hafði skyndilega verið komið fyrir þannig að það hindraði flæði viðskiptavina inn í búðina, þvert á útboðsgögn, segir Lydía. Í samningnum hafi einnig verið kveðið á um að báðir aðilar ættu að endurskoða samninginn ef farþegafjöldi færi undir lægstu spár Hún segir að svartasta sviðsmyndin í farþegaspá yfir samningstímabilið hefði gert ráð fyrir að lágmarki 10 milljónum farþega en nú sé aðeins gert ráð fyrir um 7,5 milljónum farþega. Þá megi einnig nefna að fall Play í haust kunni að hafa áhrif á þetta. Lydía segist ítrekað hafa kallað eftir samtali og endurmati á samningnum og jafnvel lagt fram lausnir á borð við lækkun á leiguprósentu eða fasta greiðslu, en öllum tillögum þess efnis hafi verið hafnað. Þessi mynd er reyndar frá Rammagerðinni í Kringlunni, ekki Leifsstöð. Settu þeim afarkosti „Þeir senda okkur greiðsluáskorun 3. mars,“ segir hún um Isavia. Rammagerðin hafi leitað álits tveggja lögmannsstofa, Logos og AX, og svo hafnað kröfunni samkvæmt því áliti. Lögmannsstofurnar hafi báðar sent frá sér mat á því að Isavia væri í órétti. Á þriðjudaginn fær Lydía svo símtal frá fulltrúum Isavia þar sem henni er tilkynnt að verslunum Rammagerðarinnar yrði lokað með hálftíma fyrirvara. Starfsmönnum hafi verið hótað sviptingu aðgangsheimilda ef þeir reyndu að halda áfram sölu. Lögmaður Rammagerðarinnar náði sambandi við stjórnarformann Isavia á miðvikudagskvöld sem leiddi til þess að verslunin var opnuð aftur daginn eftir. „En [þeir] setja okkur svo bara afarkosti um að við þurfum að skaffa 100 milljónir fyrir föstudag – við fáum einn sólarhring til þess – og í ofanálag eigum við að afsala okkur allri skaðabótakröfu sem við mögulega getum átt í lj´si vanefnda Isavia,“ segir hún. „Nauðbeygð“ „Þess vegna erum við raunverulega nauðbeygð til þess að fara til héraðsdóms á Suðurnesjum, sem náttúrulega gapir og veit að þetta er ólögleg aðför og vill bara að svona hlutir séu framkvæmdir í gegnum sig, og setja okkur í greiðsluskjól.“ Þau hafi fengið skjal frá héraðsdómi klukkan eitt í dag sem þau hafi svo birt Isavia þar sem sýni að þau geti ekki farið svona þarna fram og þetta þurfi að gerast í gegnum sýslumann. „En við viljum náttúrulega ekkert frekar en að fá að halda okkar starfsemi óbreyttri enda erum við elsti leigutaki Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og höfum verið það í fjóra áratugi.“
Isavia Keflavíkurflugvöllur Verslun Mest lesið Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Samstarf Fleiri fréttir Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Sjá meira