Handbolti

Tvisvar marka­kóngur fyrir tví­tugt

Sindri Sverrisson skrifar
Baldur Fritz Bjarnason raðaði inn mörkum fyrir ÍR en er nú á leið í atvinnumennsku til Svíþjóðar.
Baldur Fritz Bjarnason raðaði inn mörkum fyrir ÍR en er nú á leið í atvinnumennsku til Svíþjóðar. Vísir/Anton Brink

Þrátt fyrir að hafa misst af síðustu leikjum tímabilsins vegna meiðsla þá er ÍR-ingurinn ungi Baldur Fritz Bjarnason markakóngur Olís-deildarinnar í handbolta, annað árið í röð.

Baldur er aðeins 19 ára en er á leið í atvinnumennsku í Íslendingabæinn Kristianstad í Svíþjóð í sumar.

Þangað fer hann sem tvöfaldur markakóngur því hann endaði aftur markahæstur í ár, með alls 162 mörk í 19 leikjum eða 8,5 mörk að meðaltali í leik.

Í fyrra, á sínu fyrsta tímabili í efstu deild, skoraði Baldur reyndar enn fleiri mörk eða 211 talsins, í 22 leikjum, sem gerir 9,59 mörk að meðaltali í leik og mun vera met.

Þrátt fyrir mörk Baldurs urðu ÍR-ingar að sætta sig við fall úr Olís-deildinni í gær, aðeins stigi á eftir Stjörnunni sem nú fer í fallumspil við lið úr Grill 66-deildinni. Baldur spilar hins vegar í sænsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð, ein sog fyrr segir.

„Fyrst og fremst held ég að það sé ótrú­lega mikilvægt fyrir mig að fara núna út. Sér­stak­lega því þá get ég bara ein­beitt mér að því að vera hand­bolta­maður, líf mitt snýst þá bara um að verða eins góður og ég get verið í hand­bolta í staðin fyrir að vera í skóla eða annarri vinnu með. Ég ætla vera með fulla ein­beitingu á þessu næstu tvö ár, ein­beita mér hundrað pró­sent að Kristian­stad, gera eins vel og ég get, verða eins góður og ég get,“ sagði Baldur í viðtali við Vísi í síðasta mánuði.

Valur tryggði sér deildarmeistaratitilinn í gær og mætir HK í 8-liða úrslitum. FH mætir Fram, Haukar mæta Aftureldingu og ÍBV mætir KA.

KA-maðurinn Bjarni Ófeigur Valdimarsson kom að flestum mörkum í deildarkeppninni því hann átti flestar stoðsendingar, eða 122 talsins, og skoraði 147 mörk, í 19 leikjum. Aðeins Baldur og Selfyssingurinn Hannes Höskuldsson, með 154 mörk í 21 leik, skoruðu fleiri mörk í vetur.

Ítarlega tölfræði úr deildinni má nálgast á vef HB Statz.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×