Risa leikur í kvöld: „Einn af þeim stærri í sögu Þórs Þorlákshafnar“ Aron Guðmundsson skrifar 12. mars 2026 13:03 Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar. Vísir/Hulda Margrét Þór Þorlákshöfn berst fyrir lífi sínu í Bónus deildinni og mætir liði Ármanns í kvöld í algjörum lykilleik sem þjálfari Þórs, Lárus Jónsson, segir vera einn þann mikilvægasta í sögu félagsins. „
Þetta er risa leikur. Bara einn af þeim stærri í sögu Þórs Þorlákshafnar síðan að liðið fór upp í úrvalsdeild fyrir sextán árum síðan. Auðvitað var leikurinn um Íslandsmeistaratitilinn stærri en nú erum við að reyna forðast fallið og halda okkur í deild á meðal þeirra bestu. Þetta verður rosalegur leikur og við þurfum eiginlega að fá alla Þorlákshafnarbúa til þess að mæta á leikinn og styðja við strákana. Ég veit að þeir verða tilbúnir.“ Fyrir leik kvöldsins eru Þórsarar í 10.sæti Bónus deildarinnar með 10 stig, tveimur stigum frá fallsæti þar sem að Ármann situr. Ármenningar unnu fyrri leik liðanna og geta því með sigri í kvöld tryggt sér innbyrðisviðureignina gegn Þórsurum sem gæti talið ansi mikið ef liðin enda jöfn að stigum að lokinni deildarkeppni. Þórsarar Lárusar ætla að reyna koma í veg fyrir það og hann treystir á samstöðu samfélagsins í Ölfus í baráttunni í kvöld. „Ég veit alveg hversu megnugir Ölfusingar eru þegar að þeir standa saman. Ég veit að það er mjög erfitt að vinna okkur þegar höllin er full. Það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir okkur að fá góðan stuðning í kvöld.“ Allir viti mikilvægi leiksins. „Ég held það sé betra að spila undir pressu og tel það ýta undir að leikurinn verði góður frekar en hitt. Mér finnst við hafa spilað betur í vetur þegar að það er mikið undir, eins og til að mynda á útivelli gegn ÍR á dögunum.“ Þrátt fyrir að staðan sé þröng núna og Þórsarar í harðri fallbaráttu á liðið enn tölfræðilegan möguleika á að komast í úrslitakeppni deildarinnar. Lárus og hans menn eru ekkert að hugsa um það núna. „Akkúrrat núna er það markmið númer eitt, að tryggja sæti okkar í deildinni. Allt annað er bónus. Það þarf náttúrulega mikið að ganga upp svo við komumst í úrslitakeppnina. Ef við vinnum í kvöld erum við komnir í góða stöðu með að halda sæti okkar í deildinni. Ef við töpum í kvöld eru tveir leikir inni. Fyrst fókus á leikinn í kvöld og að halda sæti okkar í deildinni. Ef við vinnum þá getum við farið að hugsa eitthvað annað.“ Leikur Þórs Þorlákshafnar og Ármanns í Bónus deild karla í körfubolta hefst klukkan korter yfir sjö í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 3.
Bónus-deild karla Þór Þorlákshöfn Ármann Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Sjá meira