„Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Lovísa Arnardóttir og Telma Tómasson skrifa 11. mars 2026 22:00 Jón Bjarki segir horfur í efnahagslífinu hafa versnað töluvert hratt. Vísir/Vilhelm Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir betra fyrir Seðlabankann að bregðast við núna en að þurfa að grípa seinna til harkalegri ráðstafana. Verðbólga hefur þróast með allt öðrum hætti en Seðlabankinn og greiningaraðilar gerðu sér vonir um og stýrivaxtahækkun er nú spáð í næstu viku.
Greint var frá því í dag að Íslandsbanki spái 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta við næstu vaxtaákvörðun þann 18. mars. Versnandi skammtímaverðbólguhorfur og hækkandi verðbólguvæntingar eru taldar af bankanum munu þar ríða baggamuninn þótt talsverðar líkur séu á óbreyttum vöxtum og hertri framsýnni leiðsögn. Vaxtalækkunarferli verði síðar á ferð en áður var búist við. Verðbólga mældist 5,2 prósent í febrúar, eftir að hafa einnig mælst 5,2 prósent í janúar. „Horfurnar hafa versnað töluvert,“ segir Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka og að það sé áhyggjuefni. Rætt var við Jón Bjarka í kvöldfréttum Sýnar. „Það eru svo margir þættir sem eiga saman sök í því hvernig þetta hefur verið að þróast,“ segir hann og nefnir opinber gjöld sem höfðu meiri áhrif en vænst hafði verið í upphafi árs. Hann segir seigt í einkaneyslu og þó svo að það sé jákvætt að fólk hafi meira á milli handanna hjálpi það ekki í þessu ástandi. „Og núna síðast erum við að sjá olíuverð rjúka upp í kjölfar ófriðarins í Íran og það er ekki alveg útséð með hversu mikil verðbólguáhrif verða af því en þau verða alveg örugglega einhver.“ Gera ráð fyrir meiri verðbólgu til lengri tíma Því hafði verið spáð að á þessum tíma yrði haldið áfram vaxtalækkunarferli Seðlabankans en útlit er fyrir að í næstu stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans gætu vextir verið hækkaðir á ný. Jón Bjarki segir það ekki góðar fréttir. „Seðlabankinn hlýtur að hafa verulegar áhyggjur af því að tiltrú á að hann nái markmiðinu á ásættanlegum tíma hefur verið að minnka. Við fengum nýja könnun í gær sem sýndi að bæði almenningur og stjórnendur í atvinnulífinu gera ráð fyrir talsvert meiri verðbólgu til lengri tíma.“ Jón Bjarki segir að þessar væntingar hafi verið minni og stöðugri til lengri tíma, en þær hafi hækkað töluvert í síðustu mælingu og það bendi til þess að „bankinn þurfi að herða tóninn“. „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg til þess að snúa þeirri þróun við.“ Jón Bjarki segir Seðlabankann þurfa að sýna að hann sé tilbúinn til að bregðast við. Hann þurfi ekki að gera það með stórtækri hækkun heldur sé einfaldlega nóg að sýna að hann vilji og muni bregðast við. „Þá kemst hann vonandi í gegnum þetta tímabil án þess að þurfa að hækka vexti þó meira en þetta.“ Meiri hætta á að kjarasamningum verði slitið Forsenduákvæði kjarasamninga gerir ráð fyrir að það megi slíta samningum verði verðbólgan meiri en 4,7 prósent í haust. Jón Bjarki segir auknar líkur á að það verði en bankinn geri þó enn ráð fyrir því að verðbólgan muni ekki hafa náð því í haust. „Okkar spá gerir ráð fyrir rúmlega fjögurra prósenta verðbólgu í ágúst, sem verður krítíska mælingin hvað þetta varðar, en það eru ekki margir mánuðir síðan við töldum það nánast útilokað að þessi forsenda væri í hættu,“ segir hann og að þessi staða geri það enn mikilvægara að það sé brugðist við núna. Þannig sé hægt að lækka verðbólguþrýstinginn núna og mögulega koma í veg fyrir að þessi staða komi upp í haust. „Það er betra að gera það fyrr en að þurfa að grípa til harkalegri ráðstafana seinna.“
Seðlabankinn Verðlag Íslandsbanki Efnahagsmál Mest lesið Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Viðskipti innlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Viðskipti innlent Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Viðskipti innlent Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Viðskipti innlent Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Sjá meira