„Eins og best verður á kosið í heiminum“ Smári Jökull Jónsson skrifar 11. mars 2026 21:02 Sindri Ástmarsson er verkefnastjóri hjá Sena Live. Vísir/Ívar Fannar Yfir fimm hundruð manns koma að undirbúningi og annarri vinnu í tengslum við tónleika Laufeyjar í Kórnum um helgina og hefur undirbúningur staðið yfir í meira en ár að sögn tónleikahaldara. Þá er búið að opna svokallað Laufeyjarland í Smáralind.
Stórstjarnan Laufey kemur fram á tvennum tónleikum í Kórnum um helgina en alls munu um sextán þúsund gestir sækja tónleikanna. Eru þeir hluti af A matter of time tónleikaröðinni en Laufey fyllti meðal annars Madison Square Garden í New York í tvígang. Verið er að umbreyta Kórnum í tónleikasal.Vísir „Þetta er með því allra stærsta sem við höfum gert. Kannski það skemmtilegasta við þetta er að þetta er íslenskur listamaður sem er að koma heim og að gera tónleika af þeirri stærðargráðu sem Justin Timberlake, Justin Bieber og Ed Sheeran hafa haldið á Íslandi,“ segir Sindri Ástmarsson verkefnastjóri hjá Sena Live. „Það er ekkert færra fólk að koma til landsins eða búnaður eða neitt svoleiðis. Hún er auðvitað bara ein allra stærsta stjarna í heimi.“ Kemur sjálf með nokkra gáma með sviðsbúnaði Yfir 500 manns koma að tónleikunum á vegum Sena Live, í undirbúningi og vinnu á tónleikunum sjálfum. Verið var að setja upp sviðið í Kórnum í dag en þar fyrir aftan er 200 fermetra risaskjár. Í loftinu hangir búnaður sem vegur fimmtán tonn og kaplarnir sem notaðir verða á tónleikunum myndu ná alla leið á Akranes yrðu þeir tengdir saman. Laufeyland opnaði í Smáralind í gær.Vísir „Það er fyrsta flokks hljóðkerfi og ljósin eins og best verður á kosið í heiminum. Svo er Laufey líka að koma með nokkra gáma af sviðsbúnaði sem hefur ekki sést áður á landinu.“ Tímabundin verslun og umferðartakmarkanir Þá opnaði tímabundna verslunin Laufeyland í Smáralind í gær en þar verður hægt að nálgast varning merktan söngkonunni, derhúfur og peysur og fleira í þeim dúr. Þar var haldin danskeppni í dag og á morgun mun Elín Hall koma fram á tónleikum við verslunina en hún hitar upp fyrir Laufeyju í Kórnum um helgina. Takmarkanir verða á umferð í Kringum Kórinn bæði á laugardag og sunnudag.Vísir/Hjalti Einnig hefur Kópavogsbær tilkynnt um götulokanir vegna tónleikanna en skipulagðar strætóferðir verða frá Smáralind fyrir tónleikagesti og engin bílastæði í boði við Kórinn nema fyrir hreyfihamlaða. Þá er leigubílum heimilt að aka að sérstakri stoppistöð nærri Kórnum en lokanir hamla ekki aðgengi íbúa að heimilum sínum í hverfinu.
Laufey Lín Tónleikar á Íslandi Kópavogur Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira