Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Samúel Karl Ólason skrifar 11. mars 2026 14:48 Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist geta bundið enda á stríðið hvenær sem er. AP/Mark Schiefelbein Donald Trump, Bandaríkjaforseti, segir að stríðið gegn Íran gæti verið búið innan skamms. Vísaði hann til þess að þar væri „nánast ekkert eftir til að ráðast á“. Embættismenn í bæði Bandaríkjunum og Ísrael segjast þó vera að undirbúa sig fyrir áframhaldandi árásir í að minnsta kosti tvær vikur. „
Lítið af hinu og þessu,“ sagði Trump um möguleg frekari skotmörk í Íran í stuttu viðtali við blaðamann Axios í dag. „Hvenær sem ég vil að þetta stríð endi, mun það enda.“ Trump sagði einnig að stríðið gegn Íran hefði gengið frábærlega. Bandaríkjamenn og Ísraelar væru langt á undan áætlun og hefðu valdið klerkastjórninni í Íran mun meiri skaða en upprunalega hefði verið talið mögulegt. Þá sagði forsetinn að klerkastjórnin væri að gjalda fyrir 47 ár af dauða og eyðileggingu sem hún hefði valdið í Mið-Austurlöndum og víðar. Hafa varpað sprengjum á rúmlega 5.500 skotmörk Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísrael, sagði í morgun að stríðið gegn Íran myndi halda áfram, þar til markmiðum stríðsins hefði verið náð og sigur gegn klerkastjórninni verið unninn. Hann sagði að eitt markmiða stríðsins væri að gera írönsku þjóðinni kleift að losna undan oki klerkastjórnarinnar. Aðmírállinn Brad Cooper, sem stýrir yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (CENTCOM), sagði í ávarpi sem birt var í dag að á undanförnum tæpum tveimur vikum hefðu Bandaríkjamenn varpað sprengjum eða skotið eldflaugum á rúmlega 5.500 skotmörk í Íran og að sérstök áhersla væri lögð á að granda eldflaugum og drónum klerkastjórnarinnar og getu hennar til að framleiða fleiri slík hergögn. Hann sagði fimmtíu þúsund bandaríska hermenn starfa á svæðinu um þessar mundir. Update from CENTCOM Commander on Operation Epic Fury: pic.twitter.com/5KQDv0Cfxs— U.S. Central Command (@CENTCOM) March 11, 2026 Frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir gegn Írönum hafa Trump og ráðherrar hans verið margsaga um markmið stríðsins. Trump hefur sjálfur talað fyrir því að íranska þjóðin taki völdin en hann hefur einnig talað um að starfa með mönnum úr klerkastjórninni. Hann hefur einnig talað um að hann vilji fá að hafa eitthvað um leiðtoga Írans að segja og krafist þess að klerkastjórnin gefist alfarið upp. New York Times sagði frá því í gær að í aðdraganda árásanna hefðu Trump-liðar vanmetið áhrif stríðsins á markaði og olíuverð til skamms tíma. Mikil óreiða hefur skapast á mörkuðum vegna stríðsins og er það sagt hafa valdið töluverðum áhyggjum í Hvíta húsinu.
Bandaríkin Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Hernaður Ísrael Bensín og olía Skipaflutningar Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira