Segir Ísland geta komist í ESB á einu og hálfu ári Samúel Karl Ólason skrifar 11. mars 2026 07:46 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra. Vísir/Lýður Valberg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir að Ísland gæti orðið 28. aðildarríki Evrópusambandsins. Mögulega yrði hægt að klára aðildarviðræður, verði þær samþykktar í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst, og aðild samþykkt seinna meir, á einu og hálfu ári.
Þannig myndi Ísland taka fram úr ríkjum eins og Svartfjallalandi sem hafa verið í aðildarviðræðum um árabil. Í viðtalinu við Politico vísar Þorgerður til þess að Ísland sé með EES-samninginn og því séu mörg af lögum ESB þegar lög hér. Taki Íslendingar þá ákvörðun að hefja viðræður á nýjan leik gæti ferlið tekið tiltölulega lítinn tíma. Þá sagði ráðherrann að stærsta hindrunin þegar kemur að inngöngu Íslands væri, „auðvitað“, fiskveiðistjórnun. Embættismaður innan ESB sló á svipaða strengi og Katrín í nýlegu viðtali við Politico og sagði að viðræðurnar gætu tekið eitt ár. Því til stuðnings er bent á að Ísland hafi þegar lokað ellefu af 33 samningsköflum ESB. Svartfjallaland náði nýverið þeim sama áfanga eftir margra ára viðræður. Kostir inngöngu heilli Íslendinga Þorgerður ítrekaði í viðtalinu að ef Íslendingar samþykkja viðræður í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst muni verða haldin önnur atkvæðagreiðsla að viðræðum loknum, takist yfir höfuð að klára þær, um aðild að Evrópusambandinu. Hún sagði að með atkvæðagreiðslunni væri verið að færa völdin í hendur þjóðarinnar en sagði að það væri bæði í hag Íslands og ESB að viðræðurnar ættu sér stað núna en ekki eftir tvö ár eða seinna en það. Þá sagði hún að kostir þess að ganga í ESB á þessum óvissutímum á alþjóðasviðinu heilluðu suma Íslendinga og sömuleiðis væri mikilvægt fyrir viðskiptalíf Íslands að komast í var í sambandinu. Þorgerður sagði að Ísland myndi hagnast bæði efnahagslega og öryggislega á inngöngu í Evrópusambandið. „Við höfum alltaf hærri verðbólgu og vexti en önnur ríki Evrópu og það er of mikil fákeppni í hagkerfinu,“ sagði Þorgerður.
Evrópusambandið Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Innlent Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Erlent Mojtaba Khamenei særður en óhultur Erlent Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Erlent Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Erlent Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Erlent Sjái þegar merki um að forspá um klofningu þjóðarinnar standist Innlent Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Erlent Stúlkan sem leitað var að er fundin Innlent Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Fleiri fréttir Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum Birta sönnunargögn um að Bandaríkjamenn hafi verið ábyrgir fyrir árásinni Sex látnir eftir eldsvoða í strætisvagni Talin hafa skotið tíu skotum í átt að heimili Rihönnu Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Sjá meira