Já eða Nei - Tilraun til að ramma inn umræðuna Dóra Sif Tynes skrifar 10. mars 2026 12:31 Nú hefur ríkisstjórnin boðað að við Íslendingar fáum tækifæri til að greiða atkvæði um hvort við veitum henni heimild til að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið og þar með svara spurningum um hvað full aðild að sambandinu myndi fela í sér fyrir Ísland. Margir mætir menn hafa þegar ruðst fram á ritvöllinn til að finna þessari hugmynd allt til foráttu. Það er ekkert um að semja. Áhrifaleysi Íslands yrði algert innan Evrópusambandins. Sambandið er brennandi hús. Jafnvel dylgjur um föðurlandssvik. En þegar rykið hefur sest, menn ná andanum eftir upphrópanir og búið er að taka hástafina af á yklaborðinu væri kannski ráð að íhuga um hvað málið snýst í raun. Í fyrsta lagi verða menn að svara spurningunni um hvort þeir eru fylgjandi aðild Íslands að EES samningnum með frjálsri för og aðgang að innri markaðinum og almennt þeirri hugmynd að það sé hagfellt fyrir Ísland að eiga í samstarfi við Evrópuþjóðir. Ef svarið er nei, þá er það vissulega afstaða sem ber að virða. Hins vegar er hægt að gera þá kröfu til málsmetandi manna, sem leiða vilja umræðuna, að þeir þá jafnframt geri grein fyrir hver þeirra framtíðarsýn er utan Evrópusamstarfs. Hvar þeir vilja meina að Íslendingar eiga að skipa sér sess og hvernig það þjónar hagsmunum landsmanna. Ef svarið er já, ég er fylgjandi aðild að EES samningnum en tel hagsmunum Íslands best borgið utan Evrópusambandsins, þá er að sama skapi rétt að gera þá kröfu að gerð sé grein fyrir hvers vegna. Hverjir eru kostir EES samningsins umfram fulla aðild að Evrópusambandinu? Hvers vegna er aðkoma að því að móta reglur innri markaðsins ekki æskileg? Hvað breytist við fulla aðild og hvað breytist ekki? Þetta eru spurningarnar sem við þurfum að velta fyrir okkur í þessari atrennu. Allar vangaveltur um hvort hægt sé að semja um sérlausnir eða undanþágur – hvernig full aðild að Evrópusambandinu myndi líta út – eru einmitt vangaveltur. Hins vegar getum við tekið upplýsta ákvörðun um hvort við viljum fá úr því skorið. Höfundur er lögmaður og sérfræðingur í EES rétti. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dóra Sif Tynes Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar