Gunnar Nelson með ákall til ráðamanna: „Er hálf galið“ Aron Guðmundsson skrifar 10. mars 2026 08:01 Gunnar Nelson, UFC bardagakappi og þjálfari hjá Mjölni Vísir/Bjarni UFC bardagakappinn Gunnar Nelson, sem jafnframt er þjálfari í blönduðum bardagaíþróttum hjá Mjölni, kallar eftir því að komið verði á almennilegu regluverki í kringum íþróttina hér á landi. Það sé hálf galið að slíkt hafi ekki verið gert nú þegar að íþróttin sé í mikilli sókn og bardagakvöld á heimsmælikvarða verið haldið í Reykjavík. „
Þetta er náttúrulega algjör draumur,“ segir Gunnar um bardagakvöldin tvö, Glacier Fight Night, sem farið hafa fram hér á landi til þessa. „Ég bjóst nú við þessu fyrr, þegar að maður byrjaði að keppa sjálfur þá sá maður þetta alltaf fyrir sér einhvern veginn handan við hornið. En við höfum alltaf verið að bíða eftir því að fá almennilega umgjörð og reglugerð um þetta. Það er frumvarp sem liggur núna á þinginu og vonandi að það skili sér sem fyrst í gegn.“ Og á Gunnar þar við frumvarp til laga um bardagaíþróttir sem liggur nú fyrir Alþingi og er flutt af Hildi Sverrisdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins en hefur enn ekki verið tekið til umræðu á þingi. Blandaðar bardagaíþróttir eru á gráu svæði þegar kemur að stöðu íþróttarinnar gagnvart íslenskum lögum. Hvergi er minnst á það að keppni í blönduðum bardagaíþróttum (MMA) sé bönnuð en þá er heldur ekki til almennilegt regluverk er varðar framkvæmd slíkra keppna en frumvarpið sem minnst var á hér fyrr í greininni á að bæta úr því. Hálf galið og löngu tímabært Það er því ekki að sjá að það sé eitthvað sem banni fólki út í bæ, sem kemur ekkert nálægt skipulögðu íþróttastarfi í tengslum við MMA, að skipuleggja bardagakvöld. Gunnar og faðir hans, Haraldur Dean Nelson, hafa lengi talað fyrir því að komið verði á almennilegu regluverki í kringum íþróttina þar sem að öryggi og heilsa bardagafólk er í fyrirrúmi. „Þetta er náttúrulega alltaf ákveðin áhætta. Tryggingar fyrir bardagafólk og viðurkenning skiptir bara öllu máli. Líka bara að það geti ekki hver sem er farið og haldið hvað sem er. Við þurfum að fá einhverja samnefnara í tengslum við svona reglugerð, gera þetta að viðurkenndri íþrótt sem menn geta keppt í hérna heima. Það er löngu kominn tími á það og er hálf galið að við séum eins og risaeðlur með þetta. Eins og er þarftu kannski ekkert að vera með sjúkraliða, lækni eða eitthvað á þá leið í tengslum við svona bardagakvöld. Það eru bara ekki til nein lög um þetta. En það er mjög vel að þessu staðið hjá Bjarka Þór og þeim hjá Reykjavík MMA þegar kemur að Glacier Fight Night og við erum mjög ánægð með það en finnst samt sem áður það vera leiðinlegt að það sé ekki komin umgjörð um þetta. Þetta er kannski það sem þurfti til þess að fá fólk aðeins til að átta sig á hvað þetta er og varpa ljósi á áhugann hér heima. Það er gífurlegur áhugi á þessu.“ Draumar handan við hornið Til marks um það séu MMA tímarnir sem boðið er upp á hjá Mjölni stappfullir. „Ekki endilega af fólki sem vill fara að keppa í MMA. Það er langminnsta hlutfallið. Þetta er bara fólk sem hefur gaman af því að læra inn á íþróttina, hefur gaman af íþróttinni. Það er ekkert skilyrði að þú þurfir að keppa í íþróttinni, þarft ekki einu sinni að sparra ef þú vilt það ekki. Þú kemur bara og þetta er þín líkamsrækt.“ Logi Geirsson er einn efnilegasti bardagakappi landsins og varð meistari á Glacier Fight Night á dögunum.vísir / ívar En það að eiga kost á því að keppa á heimavelli hjálpi unga bardagafólkinu sem stefni langt í íþróttinni. „Þeir eru nokkrir sem eru að stefna alla leið og hafa sýnt það í síðustu bardögum sínum að það er bara draumur sem er í raun handan við hornið hjá þeim. En það þarf einhverja umgjörð til að fá styrktaraðila og svoleiðis, stækka sportið hér heima og gera það viðurkennt. Það er bara löngu kominn tími á þetta.“ Gunnar hefur verið lengi í íþróttinni og er nú bæði atvinnumaður sem og þjálfari hjá Mjölni. Hann hefur tekið eftir breytingu á tón í umræðunni um blandaðar bardagaíþróttir. Gunnar hefur verið flottur fulltrúi lands og þjóðar á heimsvísu þegar kemur að blönduðum bardagaíþróttumVísir/Getty „Ég held að fordómarnir hafi nú minnkað töluvert. Ég er búinn að keppa í þessu sem atvinnumaður síðan 2007, búinn að vera í UFC síðan 2012. Maður finnur að fólk er farið að þekkja þetta. Umræðan er allt önnur heldur en hún var árið 2010 eða jafnvel fyrr. Mörgum fannst þetta frekar ógeðslegt og hitt og þetta. Svo er fólk búið að átta sig á þessu núna. Lang lang flestir. Ég held þetta sé bara einhver seinagangur, að bara koma þessu í gegn. Þetta er kannski ekkert efst á listanum hjá þingmönnum og pólitíkusum, að setja þetta í gegn. Það er allt til staðar. Þetta þarf væntanlega að fara í gegnum einhverjar nefndir og svoleiðis lagað og svo þarf bara að kjósa um þetta á þingi. Það þarf bara að gera það eins fljótt og auðið er.“ Tólf ára sonur Gunnars varð fyrir áhrifum Bardagakvöldin á vegum Glacier Fight Night, sér í lagi það sem var haldið í Framheimilinu undir lok síðasta mánaðar, hafi verið á heimsmælikvarða. „Þetta var alveg brilljant. Ekkert eðlilega vel gert hjá þeim. Þetta er annað kvöldið sem þeir standa fyrir, töluvert stærra en hitt og miklu flottara. Ég hef farið á ég veit ekki hvað mörg kvöld í bardagakvöld út í Evrópu, Englandi og svoleiðis sem hafa ekki verið í hálfkvisti við þetta.“ Og Gunnar hefur fundið fyrir þeim jákvæðu áhrifum sem þetta hefur haft á hans bardagafólk sem steig inn í búrið á umræddu bardagakvöldi. „Þeim finnst þetta ekkert eðlilega spennandi og mér líka. Þetta var náttúrulega bara frábært kvöld. Þó svo að það hafi kannski ekki byrjað neitt sérstaklega æðislega fyrir Íslendingana. En þakið rifnaði gjörsamlega af höllinni þegar að okkar maður, Mikael Leo Aclipen, stöðvaði blæðinguna fyrir Íslendingana. Stemningin var náttúrulega bara ótrúleg. Ég á nú son sem er að vera tólf ára núna í maí. Hann hefur alltaf verið í fótboltanum en ég tók hann með mér á þetta bardagakvöld og hann sat með afa sínum og konunni minni á borði. Eftir þetta kvöld var hann alveg óður í að mæta hingað og fara æfa MMA. Og það voru fleiri, eftir þetta kvöld, sem komu að mér. Meðal annars strákar sem eru að æfa og eru ekki byrjaðir að keppa. Sem urðu fyrir miklum áhrifum af þessu og langar að fara keppa.“
MMA Mest lesið Gunnar Nelson með ákall til ráðamanna: „Er hálf galið“ Sport Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið Fótbolti Hrósar Heimi og vill að hann hermi eftir Arsenal Fótbolti Cantona á Ströndum: Leikur í kvikmynd á Hólmavík Fótbolti Tíu leikmönnum bannað að koma til Bandaríkjanna Fótbolti Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn „Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“ Handbolti Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti Truflaður af Aroni Pálmars i viðtali Sport HM-leikir í Boston í uppnámi Fótbolti Fleiri fréttir Barton ákærður fyrir líkamsárás „Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“ Gæti misst af titilvörninni Tudor segir að fallslagurinn sé mikilvægari en Meistaradeildin Tíu leikmönnum bannað að koma til Bandaríkjanna Fengu ævilangt bann fyrir að veðja á eigin leiki Þakkaði ChatGPT fyrir silfrið: „Notaði þetta sem sálfræðing, þjálfara og lækni“ Alisson ekki með gegn Galatasaray en meiðslin ekki alvarleg Arna sú fyrsta í sögunni en endaði neðst Hrósar Heimi og vill að hann hermi eftir Arsenal Segir ógeðslegt að gera grín að vítaklúðrum Samningaviðræður Snorra við HSÍ standa enn yfir: „Ég er alltaf bjartsýnn“ Cantona á Ströndum: Leikur í kvikmynd á Hólmavík Gunnar Nelson með ákall til ráðamanna: „Er hálf galið“ NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið Dagskráin í dag: Stórleikir í Meistaradeildinni Truflaður af Aroni Pálmars i viðtali Verstappen tikkar af golulistanum „Við byrjum seinni hálfleikinn gjörsamlega á hælunum“ West Ham áfram eftir spennutrylli og sigur í vítaspyrnukeppni HM-leikir í Boston í uppnámi „Ég veit ekki hvaða gjöf þú ert að tala um“ Þrjú lið geta orðið deildarmeistarar | ÍR-ingar eygja enn von KA 25-30 FH | Hafnfirðingar tryggðu heimavallarrétt Sá besti í Super Bowl til Chiefs City og Liverpool mætast í átta liða úrslitunum Draumabyrjun en matraðarendir hjá Victori í Íslendingaslag Ýmir og félagar með tvo sigra í röð í fyrsta sinn í fjóra mánuði Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Sjá meira