Ísland í brennidepli: Lýðfræðilegar breytingar og nýtt jafnvægi á vinnumarkaði Ingvar Freyr Ingvarsson og Sigrún Brynjarsdóttir skrifa 9. mars 2026 11:32 Öldrun þjóða, samdráttur á vinnuafli og vaxandi eftirspurn eftir sérhæfðri þekkingu eru meðal helstu áskorana sem efnahagslíf þróaðra ríkja stendur frammi fyrir á komandi áratugum. Um þetta er fjallað í nýlegri grein í Financial Times (FT). Niðurstöður hennar ríma vel við greiningar á stöðu íslensks vinnumarkaðar, sem benda til þess að Ísland sé þar engin undantekning og að íslenskur vinnumarkaður standi frammi fyrir sambærilegum áskorunum og víða annars staðar á Vesturlöndum. Í grein BHM, „Nýtt jafnvægi á íslenskum vinnumarkaði”, er bent á að íslenskur vinnumarkaður hafi tekið grundvallarbreytingum á undanförnum tveimur áratugum. Þær breytingar tengjast einkum mikilli fjölgun innflytjenda, hækkandi menntunarstigi og breyttri aldursdreifingu þjóðarinnar. Á sama tíma og stórir árgangar nálgast starfslok hefur eftirspurn eftir sérfræðimenntuðu vinnuafli aukist og haldist mikil. Þessi þróun endurspeglar í meginatriðum þá alþjóðlegu mynd sem FT dregur upp. Ísland - lýðfræðileg undantekning eða ýkt útgáfa af alþjóðlegri þróun? Innflytjendur hafa verið meginkrafturinn í fjölgun vinnuafls hér á landi undanfarin ár. Í erindi á morgunverðarfundi BHM kom fram að vinnuaflið á Íslandi hafi vaxið um 37% á tímabilinu 2005-2025. Af þeirri fjölgun má rekja 73% til innflytjenda. Þetta styður þá staðhæfingu FT að mörg hagkerfi sæki sífellt meira í aðflutt vinnuafl til að viðhalda efnahagslegum stöðugleika og að samkeppni um slíkt vinnuafl sé mikil og fari vaxandi. Greining BHM sýnir að hlutfall innlends vinnuafls hafi farið úr 94% í 75% á tveimur áratugum. Þetta er óvenjulega hröð breyting í OECD-samanburði og hlýtur að hafa áhrif á hvernig stjórnvöld, atvinnurekendur og samtök launafólks huga að innviðum, heilbrigðis- og menntakerfi, húsnæði og félagslegri þjónustu. Hækkandi aldur, lengri starfsævi og aukin veikindaforföll Í umfjöllun FT er jafnframt bent á sívaxandi álag á velferðarkerfi vegna öldrunar þjóða. Sama mynd blasir við á Íslandi og í nágrannalöndum okkar. Þegar færri bætast við á vinnumarkaði verður það sífellt kostnaðarsamara fyrir samfélagið að missa starfsmann tímabundið út af veikindum. BHM hefur ítrekað bent á að aukning veikindaforfalla og geðrænna álagsþátta á Norðurlöndum endurspegli samfélagsbreytingar sem Ísland hefur hingað til aðeins takmörkuð gögn til að greina til hlítar. Í greiningu BHM kemur fram að veikindaforföll hafi aukist á undanförnum árum og að álag, mannekla og kröfuharðara vinnuumhverfi hafi hvað mest áhrif á háskólamenntaða sérfræðistéttir í framlínustörfum, sem eru stór hluti félagsmanna BHM. Ef tryggja á að starfsævin lengist með farsælum hætti þarf Ísland að fjárfesta með markvissum hætti í færni eldra fólks, draga úr aldursfordómum á vinnumarkaði og tryggja raunhæfan aðgang að endurmenntun og símenntun. Á sömu þætti er bent í grein FT þar sem rætt er um nauðsyn þess að sköpuð séu skilyrði fyrir aukinni þátttöku eldra starfsfólks á vinnumarkaði. Menntun, sérhæfing og „nýtt jafnvægi“ Hagkerfi framtíðarinnar verður sífellt meira drifið áfram af sérhæfðri þekkingu og færni. Á Íslandi eru nú 49% starfandi á aldrinum 25-64 ára með háskólamenntun, samanborið við 30,5% árið 2005. Þetta er gífurleg breyting á stuttum tíma. En á sama tíma líður starfsævi kvenna fyrir kerfisbundna mismunun. Ný greining BHM um stöðu kvenna sýnir að barneignir hafi langvinn áhrif á starfsferil, tekjur og atvinnuþátttöku kvenna og að menntun skili þeim síður hærri tekjum en körlum. Þetta er ekki aðeins jafnréttismál, sem blasir við að þurfi að færa til betri vegar, heldur líka spurning um hvernig við viljum byggja upp vinnumarkaðinn og hagkerfið til framtíðar. Innflytjendur - lykilbreyta í hinu nýja jafnvægi BHM hefur einnig bent á að án innflytjenda hefði fjölgun vinnuafls á Íslandi verið innan við 10% síðustu tvo áratugi. Án þeirrar fjölgunar sem orðið hefur í innflutta vinnuaflinu hefðum við þurft að sníða okkur annars konar vinnumarkað. Lýðfræðilegar breytingar og öldrun þjóða eykur samkeppni um erlenda sérfræðinga m.a. til að mæta skorti í velferðar- og heilbrigðisþjónustu. Í þessari stöðu felst líka áskorun: Að atvinnustefna okkar rími við veruleikann á vinnumarkaði svo tryggt verði að menntun og hæfni innflytjenda nýtist, að vinnumarkaðurinn sé aðgengilegur og að kerfin mismuni ekki fólki eftir uppruna. Lokorð Hröð lýðfræðileg breyting og aukin sérhæfing kalla á betri nýtingu fjölbreytts mannauðs. Ef stjórnvöld, atvinnurekendur og samtök launafólks taka höndum saman er hægt að byggja upp og viðhalda sterkum vinnumarkaði sem tryggir að sérhæfð þekking og fjölbreytt hæfni fólks nýtist með sem skilvirkustum hætti. Það styður okkur í að mæta lýðfræðilegum breytingum af krafti og með skýra sýn að leiðarljósi. Höfundar eru hagfræðingar BHM. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnumarkaður Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar