„Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. mars 2026 22:31 Kristófer Acox átti stórleik á móti uppeldisfélaginu sínu og fékk mikið hrós í Körfuboltakvöldi. Vísir/Diego Kristófer Acox átti stórleik á móti uppeldisfélaginu sínu þegar Kristófer og félagar í Val unnu framlengdan leik á móti KR í 19. umferð Bónusdeildar karla í körfubolta. Körfuboltakvöld tók sérstaklega fyrir frammistöðu leikmannsins sem íslenski landsliðsþjálfarinn telur sig ekki hafa not fyrir.
Kristófer var með 17 stig, 17 fráköst og 8 stoðsendingar í þessum nauma sigri á KR-ingum. Stefán Árni Pálsson spurði sérfræðinginn sinn Teit Örlygsson út í þessa frammistöðu Kristófers sem var mjög duglegur að verja skot KR-inga í leiknum. Sendi skilaboð „Þessi varnarleikur hjá honum í seinni hálfleik og þá í fjórða leikhluta fannst mér senda skilaboð,“ sagði Teitur. „Mér finnst þetta bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár. Mér fannst hann ‚dómínera' leikinn. Hann frákastaði, hann var að skora hinum megin. Hann er alltaf með háar prósentur í skotum sínum eins og vanalega,“ sagði Teitur. „Öll þessi vinna hans einn á móti tveimur eða þremur. Það skipti engu máli og svo skilar hann öllu ofan í. Mér fannst Kristó vera algjörlega frábær í þessum leik,“ sagði Teitur. Þetta er hans tími „Núna er bara komið að ögurstundu og núna þurfa menn að vera bestir,“ sagði Stefán Árni. „Þetta er bara hans tími. Nýbúinn að vera meiddur þarna í einhvern smá tíma og sjáið þessar tölur. Fjörutíu í framlag, 17 og 17,“ sagði Benedikt. Edna og Nablinn sátt „Ég sé fyrir mér Ednu mömmu hans [Edna María Jacobsen] vera mjög sátta í kvöld og svo vin okkar Andra Má [Eggertsson, Nablinn]. Þetta er þeirra kvöld,“ sagði Benedikt. Hér fyrir neðan má horfa á þessa umræðu og einnig umræðu um liðsfélaga Kristófers Keyshawn Woods. Klippa: Besti leikur Kristó í nokkur ár og Woods uppi á vitlausum tíma
Bónus-deild karla Valur Körfuboltakvöld Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Körfubolti Fleiri fréttir Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Sjá meira