Dúfa stöðvaði leik Orra og félaga í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. mars 2026 08:30 Jose Maria Gimenez hjá Atletico de Madrid sést hér taka upp dúfuna af grasinu. Getty/Dennis Agyeman Dúfa stöðvaði leik stuttlega í 3-2 sigri Atletico Madrid á Real Sociedad í spænsku deildinni í fótbolta í gærkvöldi.
Varnarmaðurinn Jose Gimenez hjá Atletico tók fuglinn upp af vellinum og kom honum í öruggt skjól. Leikurinn var stöðvaður á 22. mínútu þegar Úrúgvæinn fjarlægði meiddan fuglinn af vellinum eftir að fuglagreyið virtist hafa orðið fyrir boltanum í miðjum leik. Spænskir fjölmiðlar höfðu eftir Gimenez um atvikið: „Ég spurði dómarann hvað væri í gangi. Hann sagði mér að það væri út af dúfunni og ég sagði: ‚Í alvöru? Stöðvaðirðu leikinn út af dúfunni?‘ Ég tók hana upp. Ég veit ekki hvort það eigi að gera það á einhvern ákveðinn hátt. Ég vona að hún hafi ekki slasast alvarlega,“ sagði Jose Gimenez. Þetta var önnur stoðsending Gimenez í leiknum eftir að hafa lagt upp fyrsta mark Atletico, þegar hann skallaði langt innkast áfram á Alexander Sørloth sem skoraði á fimmtu mínútu. Carlos Soler svaraði svo fyrir gestina fjórum mínútum síðar. Nicolas Gonzalez skoraði síðan tvö mörk sitt hvoru megin við mark frá Mikel Oyarzabal og lið Diego Simeone styrkti þar með tök sín á þriðja sæti deildarinnar. Orri Steinn Óskarsson var í byrjunarliði Real Sociedad en fór af velli í stöðunni 1-1. José María Giménez. Un ser de luz. 🕊️#LaLigaHighlights pic.twitter.com/GCTPjEbjry— Atlético de Madrid (@Atleti) March 7, 2026
Spænski boltinn Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Sjá meira