Hafa ekki náð á 26 Íslendinga í Mið-Austurlöndum Lovísa Arnardóttir skrifar 7. mars 2026 11:12 Myndin er tekin í Rúmeníu í gær þegar farþegar lentu þar úr björgunarflugi sem skipulagt var frá Óman. Vísir/AP Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur ekki náð sambandi við 26 Íslendinga á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum. Alls hafa 120 Íslendingar komið sér af svæðinu eða ætla ekki að gera það, en enn er unnið að málum 47 Íslendinga. Frá þessu er greint í tilkynningu frá stjórnarráðinu.
Þar kemur fram að tæplega 120 Íslendingar sem voru á áhrifasvæðum stríðsátaka í Mið-Austurlöndum hafi yfirgefið svæðið, eigi bókað flug eða ætli sér ekki að yfirgefa svæðið. Á vef stjórnarráðsins kemur fram að meirihlutinn dvelji í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, eða alls 75 einstaklingar. Þá séu 35 í Óman, 21 í Katar og 17 í Sádi Arabíu. Þá eru ellefu í Barein og svo fjöldi víðar á svæðinu. Hér má sjá hvar fólk dvelur á svæðinu og hver staða mála er. Stjórnarráðið Þar segir að viðbragðsteymi borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins hafi vegna ástandsins í Mið-Austurlöndum sent fyrir hádegi á fimmtudag út tölvupóst þar sem fólk á svæðinu var beðið um að láta vita hvort það þyrfti á aðstoð að halda eða ekki. Í gærmorgun, föstudag, hafi 150 aðilar átt eftir að svara og hafi verið ráðist í að hringja í allan hópinn til að ná sem skýrastri mynd af raunverulegri þörf. Ekki hefur náðst í 26 manns og eru viðkomandi eindregið hvött til að láta vita af sér sem allra fyrst. „Tilkynningar um björgunarflug berast borgaraþjónustunni nú jafnt og þétt og eru upplýsingar um þau sendar á viðeigandi aðila eftir staðsetningu. Aðallega er um að ræða flug frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Óman og Sádi Arabíu en lofthelgi annarra ríkja á svæðinu er enn að mestu lokuð. Þá eru einnig almenn farþegaflug í boði frá Múskat í Óman og Riyadh í Sádi Arabíu,“ segir að lokum.
Utanríkismál Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íslendingar erlendis Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Óman Sameinuðu arabísku furstadæmin Sádi-Arabía Katar Barein Tengdar fréttir Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Ungar íslenskar konur sem fastar eru í Dúbaí sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi sem íslenska borgaraþjónustan hefur boðið borgurum á átakasvæðinu í Mið-Austurlöndum þar sem brottfararstaður er í 12 til 24 klukkustunda akstursfjarlægð. Þær vonast frekar til þess að geta náð flugi á laugardag og haldið sínu striki í heimsreisu. 4. mars 2026 20:41 Flóttinn frá Dúbaí gengur vel Kærustuparið Davíð Guðlaugsson og Lovísa Ósk Davíðsdóttir lentu í Jedda í Sádi-Arabíu í gærkvöld. Þaðan áttu þau svo bókað flug til London í morgun og því allt útlit fyrir að áætlun þeirra um að forða sér frá Dúbaí á eigin vegum ætli að ganga upp. 4. mars 2026 13:00 Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum „Það er er enginn sem hjálpar okkur eitt né neitt hérna,“ segir Davíð Guðlaugsson, sem hefur setið fastur í Dúbaí ásamt unnustu sinni, Lovísu Ósk Davíðsdóttur. Þau undrast ráðaleysi borgaraþjónustu utanríkisráðuneytis og ætla í nótt að freista þess að komast til Óman á eigin vegum. 2. mars 2026 18:56 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira
Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Ungar íslenskar konur sem fastar eru í Dúbaí sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi sem íslenska borgaraþjónustan hefur boðið borgurum á átakasvæðinu í Mið-Austurlöndum þar sem brottfararstaður er í 12 til 24 klukkustunda akstursfjarlægð. Þær vonast frekar til þess að geta náð flugi á laugardag og haldið sínu striki í heimsreisu. 4. mars 2026 20:41
Flóttinn frá Dúbaí gengur vel Kærustuparið Davíð Guðlaugsson og Lovísa Ósk Davíðsdóttir lentu í Jedda í Sádi-Arabíu í gærkvöld. Þaðan áttu þau svo bókað flug til London í morgun og því allt útlit fyrir að áætlun þeirra um að forða sér frá Dúbaí á eigin vegum ætli að ganga upp. 4. mars 2026 13:00
Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum „Það er er enginn sem hjálpar okkur eitt né neitt hérna,“ segir Davíð Guðlaugsson, sem hefur setið fastur í Dúbaí ásamt unnustu sinni, Lovísu Ósk Davíðsdóttur. Þau undrast ráðaleysi borgaraþjónustu utanríkisráðuneytis og ætla í nótt að freista þess að komast til Óman á eigin vegum. 2. mars 2026 18:56