Betra starfsumhverfi á kostnað foreldra? Örn Arnarson skrifar 6. mars 2026 13:45 Í gær birtist á Vísi grein undir yfirskriftinni „Opið bréf frá leikskólastjórum í Kópavogi“. Þar leggja stjórnendur leikskóla fram sína sýn á Kópavogsmódelið og breytingar á leikskólastarfinu í bænum. Það vekur þó spurningar þegar umræðan er sett þannig fram að foreldrar og leikskólastarf standi hvort á móti öðru. Foreldrar eru ekki andstæðingar leikskólakerfisins – þeir eru einfaldlega þeir sem nota það á hverjum degi. Því vaknar eðlileg spurning: Hvaða tilgangi þjónar grein sem talar niður til foreldra sem benda á raunveruleg áhrif kerfisins á fjölskyldur? Foreldrar í Kópavogi hafa aldrei verið á móti góðu starfsumhverfi í leikskólum. Þvert á móti vilja þeir sterka leikskóla, stöðuga mönnun og faglegt starf fyrir börnin sín. Ef breytingar hafa bætt stöðu starfsfólks er það jákvætt. En leikskólakerfið er líka hluti af velferðarkerfi samfélagsins – og þegar breytingar hafa áhrif á daglegt líf fjölskyldna er eðlilegt að foreldrar taki þátt í þeirri umræðu. Þegar leikskólakerfið passar ekki við raunveruleikann Í greininni er talað um gjaldfrjálsa sex tíma vistun og aukinn sveigjanleika. En fyrir margar fjölskyldur passar sá veruleiki illa við daglegt líf. Margir foreldrar hafa styttingu vinnuviku en það var hins vegar aðeins samið um 36 tíma vinnuviku og seikar því enn 6 tímum plús ferðatíma til og frá vinnu. Það munar 27.437 krónum á gjaldi að vera með barnið í 6 tíma á viku og að vera með barnið 6,5 tíma. Ef barn er í leikskóla í 30–36 tíma þarf að brúa bilið með öðrum hætti, með sveigjanleika í vinnu, minni starfshlutfalli eða aðstoð frá fjölskyldu. Það er veruleiki sem margir foreldrar standa frammi fyrir og þegar kerfið styður ekki við þann veruleika færist álagið einfaldlega heim til fjölskyldna. Það merkir að foreldrar reyna að sinna bæði vinnu og fjölskyldulífi undir aukinni tímapressu. Kvöldin sem ættu að fara í samveru fara í að ná í skottið á vinnu sem náðist ekki að sinna á tilskildum tíma. Það er athyglisvert að í greininni frá leikskólastjórum er lítið sem ekkert fjallað um þessa hlið málsins. Kostnaðurinn sem færist yfir á foreldra Í greininni er einnig fullyrt að Kópavogsmódelið velti ekki kostnaði yfir á foreldra. Það er þó erfitt að sjá það þannig í framkvæmd. Sex tímar eru gjaldfrjálsir, en greiða þarf fyrir allan tíma umfram það. Fyrir fjölskyldur sem þurfa fullan vinnudag getur það þýtt hærri gjöld eða minni möguleika til að vinna fullt starf. Það ætti að teljast eðlileg krafa að útsvar íbúa fari í að bæta kjör og starfsaðstæður leikskólakennara og að það sé ekki hlutverk foreldra að færa þær fórnir. Með því að neyða foreldra í lægri vistunartíma er verið að ýta ábyrgðinni á foreldra en sveitarfélagið þarf ekki að takast á við að mæta vinnutímastyttingu starfsfólks og bæta aðstæður. Sveitarfélagið hefur heldur aldrei viljað hlusta á þær raddir sem eru óánægðar og hafa afgreitt það sem ómarktækt af einni eða annarri orsök. Kerfi sem hentar ekki öllum jafn vel Í umræðunni er stundum gefið í skyn að þetta sé einfaldlega spurning um val foreldra. En raunveruleikinn er sá að aðstæður fjölskyldna eru mjög mismunandi. Sumir hafa sveigjanlega vinnu og sterkt bakland. Aðrir ekki. Þegar leikskólakerfið byggir á styttri vistun getur það því haft mismunandi áhrif á fjölskyldur og bitnað sérstaklega á þeim sem hafa minna svigrúm til að breyta vinnu sinni eða skipulagi heimilisins. Sterkir leikskólar þurfa samstöðu Það er jákvætt ef breytingar hafa bætt starfsumhverfi í leikskólum og dregið úr manneklu. Sterkt starfsfólk er lykilforsenda góðs leikskólastarfs. En lausnin má ekki byggja á því að byrðarnar færist yfir á foreldra. Leikskólar eru ein mikilvægasta stoð velferðarsamfélagsins. Þeir eiga að styðja bæði börn, starfsfólk og fjölskyldur. Sterkt leikskólakerfi byggir á samvinnu samfélagsins alls – ekki á því að foreldrar beri auknar byrðar einir. Höfundur er formaður Samleik – samtaka foreldra leikskólabarna í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar