Varhugaverðar hugmyndir ráðherra um breytingar á raforkulögum Friðrik Már Sigurðsson skrifar 6. mars 2026 12:01 Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur kynnt hugmyndir um róttækar breytingar á raforkulögum. Samkvæmt þeim yrði ríkinu og fyrirtækjum þess veittar auknar heimildir til að hraða innviðaframkvæmdum og „ryðja hindrunum úr vegi“ sem taldar eru hamla framgangi orkuflutnings. Þessi grein er ekki skrifuð í þeim tilgangi að gera lítið úr mikilvægi þess að efla raforkuflutningskerfið. Markmið hennar er að rýna þessar fyrirætlanir ráðherrans sem ætlar að einfalda kerfið, en eru í reynd líklegar til að grafa undan stjórnarskrárvörðum réttindum íbúa, sveitarfélaga og landeigenda. Er vandinn raunverulega fólginn í lögunum? Ráðherrann hefur ítrekað lýst því yfir að núverandi löggjöf sé of flókin, þung í vöfum og hamlandi fyrir framkvæmdir. Í orðum hans birtist mynd af kerfi sem haldi nauðsynlegri innviðauppbyggingu í gíslingu, þar sem ferlar og reglur standi framþróun fyrir þrifum. Í þessu samhengi er þó nauðsynlegt að minna á að lög um eignarrétt og staðbundna stjórnsýslu eru ekki hindranir. Þau eru hornsteinar lýðræðis. Þau tryggja að ákvarðanir um framkvæmdir sem snerta samfélög og einstaklinga séu teknar í sátt og með aðkomu þeirra sem verkefnin varða. Þetta eru ekki formsatriði heldur undirstaða réttarríkisins. Stjórnarskrárvarinn réttur verður ekki afnuminn Stjórnarskrá Íslands verndar eignarrétt einstaklinga og festir sjálfstjórn sveitarfélaga í sessi. Þetta er ekki tæknilegt lagaatriði heldur grundvallarregla sem tryggir að ríkisvaldið geti ekki gengið að eignum íbúa nema með skýrum og ströngum skilyrðum. Hugmyndir ráðherrans virðast hins vegar fela í sér að rýmka valdheimildir ríkisins til að knýja fram innviðaverkefni, jafnvel þvert á vilja sveitarfélaga eða landeigenda. Ef svo fer er verið að veita ríkinu yfirburðastöðu gagnvart almenningi og skapa hættulegt fordæmi fyrir framtíðina. Það er áhyggjuefni að ráðherra virðist ekki gera sér grein fyrir mikilvægi þess að það sé viljandi erfitt, og í sumum tilfellum óheimilt, fyrir ríkið að ganga á stjórnarskrárvarinn eignarrétt íbúa. Hugmyndir um að hraða framþróun með því að skerða réttindi borgaranna eru ekki einungis vafasamar heldur eru þær beinlínis hættulegar. Réttindaskerðingar leiða til ágreinings – ekki framfara Saga og reynsla annarra ríkja sýnir að þegar stjórnvöld ganga á eignarrétt eða sjálfsákvörðunarrétt í nafni þjóðarhags leiðir það nær undantekningarlaust til ófriðar, rof í trausti og langvarandi ágreinings. Í fjölmörgum Evrópuríkjum hafa innviðaverkefni sem rekin eru áfram án staðbundins samþykkis valdið deilum, kærum og jafnvel stöðvað verkefni árum saman. Ef ríkisvaldið fær auknar heimildir til að fara fram hjá lögbundnum réttindum einstaklinga og sveitarfélaga mun það óhjákvæmilega veikja lýðræðislega stjórnsýslu og draga úr trausti almennings. Valdið flyst frá kjörnum fulltrúum til ríkisstofnana og frá íbúum til miðstýrðs stjórnvalds. Ákvörðunartaka færist frá þeim sem best þekkja svæðin til starfsmanna opinberra stofnana og fyrirtækja og hættan á árekstrum milli ríkis og samfélaga eykst til muna. Þetta er ekki leiðin að stöðugri uppbyggingu og framförum. Þetta er uppskrift að átökum, vantrausti og töfum, þáttum sem draga úr skilvirkni innviðaverkefna í stað þess að flýta þeim. Eflum samvinnu fremur en glundroða Reynsla síðustu áratuga sýnir að árangursríkustu framkvæmdir í íslensku samfélagi hafa orðið að veruleika í gegnum samráð, virðingu og sameiginlega stefnu. Þegar sveitarfélög og ríki vinna saman verða ákvarðanir bæði réttlátari og farsælli. Ríkið þarf ekki að ganga á réttindi fólks til að ná markmiðum sínum. Samráð er besta leiðin til að tryggja að sátt sé um framkvæmdir. Þegar ráðherra talar um að „ryðja hindrunum úr vegi“ er gott að spyrja: Hverjar eru hindranirnar? Ef hindrunin er fólk, réttindi þess og sjálfsákvörðunarréttur, þá er ljóst að farið er inn á stjórnsýslulega braut sem ekki samræmist íslenskri stjórnskipan né lýðræðishefð. Hugmyndir ráðherrans virðast byggðar á þeim misskilningi að réttindi einstaklinga og sveitarfélaga séu hindranir sem skuli fjarlægja. Raunin er sú að þessi réttindi eru mikilvægasta varnarvirki samfélagsins gegn misbeitingu valds. Án þeirra veikist grundvöllur lýðræðisins. Ef ríkisstjórn og Alþingi vilja bæta og hraða uppbyggingu innviða verður það að gerast í gegnum raunverulegt samráð við sveitarfélög og landeigendur. Að öðrum kosti er hætt við að verkefnin leiði til glundroða fremur en til framfara. Lagabreytingum sem ætlað er að styðja orkuskipti og uppbyggingu innviða mega ekki ganga gegn stjórnarskrá landsins. Því þarf ráðherra að endurskoða áform sín og leita þess í stað leiða sem virða réttindi íbúa og sveitarfélaga. Aðeins þannig er hægt að tryggja framfarir sem byggja á réttlæti, gagnsæi og trausti. Höfundur er formaður Hagsmunasamtaka landeigenda vegna Holtavörðuheiðarlínu 3, landeigandi og áhugamaður um sögu og gott stjórnarfar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Umhverfismál Mest lesið Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir Skoðun Kristrún og Kópavogsskatturinn – opið bréf frá leikskólastjóra í Kópavogi Egill Óskarsson Skoðun Góð, betri, best Heiðrún Kristmundsdóttir Skoðun Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson Skoðun Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir Skoðun Byrgjum brunninn í stað þess að byggja brunna Bryndís Rut Logadóttir Skoðun Er byggðastefna á Íslandi? Eyþór Stefánsson Skoðun Hugsum lengra en næstu kosningar Halldór Jörgen Olesen Skoðun Tímaskekkjan er ekki verkalýðshreyfingin Unnar Geir Unnarsson Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald Skoðun Skoðun Skoðun Hraðar heim Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Kristrún og Kópavogsskatturinn – opið bréf frá leikskólastjóra í Kópavogi Egill Óskarsson skrifar Skoðun Hugsum lengra en næstu kosningar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þegar einhverfan er ósýnileg: Stúlkur og konur á einhverfurófi Vigdís M. Jónsdóttir skrifar Skoðun Er byggðastefna á Íslandi? Eyþór Stefánsson skrifar Skoðun Góð, betri, best Heiðrún Kristmundsdóttir skrifar Skoðun Byrgjum brunninn í stað þess að byggja brunna Bryndís Rut Logadóttir skrifar Skoðun Eru verkalýðsfélög úrelt eða bara óþægileg sumum? Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Tímaskekkjan er ekki verkalýðshreyfingin Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Allt frítt í Garðabæ, eða ábyrgur rekstur ? Lárus Guðmundsson skrifar Skoðun Eigum við að forgangsraða börnunum okkar? Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Ætti Ísland að taka þátt í PISA? Maren Davíðsdóttir skrifar Skoðun Betri heilsa – betri Kópavogur Arnar Grétarsson skrifar Skoðun Vélarnar ræstar út í skurð Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Að lifa, þrátt fyrir brotna odda Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hvar á láglaunafólk að búa í Reykjavík? Ari Edwald skrifar Skoðun Við klippum ekki borða! Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir Jóhann Pétur Guðvarðarson skrifar Skoðun Loftslagsmál snúast um jöfnuð og lífsgæði Skúli Helgason skrifar Skoðun Sanna er Zohran Mamdani Reykjavíkur Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Eru hagsmunir Vestmannaeyja einskins virði? Daði Pálsson skrifar Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Sjá meira
Skoðun Kristrún og Kópavogsskatturinn – opið bréf frá leikskólastjóra í Kópavogi Egill Óskarsson skrifar
Skoðun Eldri borgarar í Hveragerði eiga meira skilið Ingibjörg Sigmundsdóttir ,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Tekjutengjum frístundastyrkinn Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar