Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2026 10:02 Travis Steele, þjálfari Miami, hefur gefið öllum loforð um að mæta á sundskýlu í sjónvarpið og þakka um leið sundliði skólans fyrir stuðninginn. X Miami-háskólaliðið er búið að vinna alla þrjátíu leiki sína í bandaríska háskólakörfuboltanum í vetur og þarf bara sigur í lokaleiknum til að vinna alla deildarleiki tímabilsins.
Almar Orri Atlason og félagar spila lokaleikinn á móti Ohio Bobcats í kvöld en svo tekur við úrslitakeppni MAC-deildarinnar. Það er mikil umræða um þennan óvænta árangur Miami í bandarískum fjölmiðlum. Lokaleikurinn verður í beinni á ESPN2. Miami OH er síðasta ósigraða liðið í háskólakörfuboltanum og ef þeir klára deildarkeppnina ósigraðir mun þjálfari þeirra, Travis Steele, klæðast sundskýlu á valdaginn (e. Selection Sunday) til að þakka sundliðinu fyrir stuðninginn. Hann gaf það loforð í sjónvarpsviðtali fyrir nokkru en síðan hefur lið hans unnið fimm leiki til viðbótar. Þá var liðið með 25 sigra í röð og ekkert tap en núna eru sigurleikirnir orðnir þrjátíu og enn hefur Miami-skólinn ekki tapað leik. Sundlið skólans mætti á leiki körfuboltaliðsins á sundskýlunni fyrr í vetur og studdi þar frábærlega við bakið á sínu liði. Nú lofar Steele því að launa þeim greiðann og ýta undir hungur sinna manna í að vinna lokaleikinn með því að mæta á sundskýlu í sjónvarpið ef þeir klára deildarkeppnina taplausir. Liðið hefur unnið alla leiki sína í deildarkeppninni og nú er bara einn leikur eftir fyrir úrslitakeppnina en lokaleikurinn er á móti Ohio í kvöld. Almar Orri hefur spilað alla þrjátíu leikina og er með 10,5 stig að meðaltali í leik sem er það fimmta mesta í liðinu. Hann hefur skorað 55 þrista og er með 38 prósent nýtingu fyrir utan þriggja stiga línuna og áttatíu prósent nýtingu á vítalínunni. Steele er á sínu fjórða ári með Miami-skólaliðið og liðið hefur undir hans stjórn hækkað sigurhlutfall sitt á hverju ári, fór úr 38 prósentum, í 47 prósent, í 73 prósent og er nú með 100 prósenta sigurhlutfall.
Bandaríski háskólakörfuboltinn Tengdar fréttir Unnu þrítugasta sigurinn í röð í nótt Almar Orri Atlason og félagar hans í Miami-háskólaliðinu héldu ótrúlegri sigurgöngu sinni áfram í bandaríska háskólakörfuboltanum í nótt. 4. mars 2026 10:32 Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Almar Orri Atlason og félagar í Miami-háskólanum unnu 29. leikinn í röð í bandaríska háskólakörfuboltanum og eru komnir upp í nítjánda sæti á styrkleikalistanum. Þeir eru eina ósigraða liðið í landinu en íþróttastjórinn er allt annað en sáttur með umræðuna um liðið í bandarískum fjölmiðlum. 3. mars 2026 11:02 Almar og félagar með augu allra á sér annað kvöld Ævintýri íslenska landsliðsmannsins Almars Orra Atlasonar og félaga hans í körfuboltaliði Miami University er nú orðið að risastórri frétt í bandarískum íþróttum. 26. febrúar 2026 18:48 Almar og félagar standa einir eftir ósigraðir í háskólakörfunni Aðeins einn skóli hefur unnið alla leiki sína í bandaríska háskólakörfuboltanum í vetur og þar spilar íslenski landsliðsmaðurinn Almar Orri Atlason stórt hlutverk. 11. febrúar 2026 09:00 Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Mexíkó – Suður-Afríka | HM fer af stað í Mexíkóborg Fótbolti Fleiri fréttir Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Sjá meira
Unnu þrítugasta sigurinn í röð í nótt Almar Orri Atlason og félagar hans í Miami-háskólaliðinu héldu ótrúlegri sigurgöngu sinni áfram í bandaríska háskólakörfuboltanum í nótt. 4. mars 2026 10:32
Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Almar Orri Atlason og félagar í Miami-háskólanum unnu 29. leikinn í röð í bandaríska háskólakörfuboltanum og eru komnir upp í nítjánda sæti á styrkleikalistanum. Þeir eru eina ósigraða liðið í landinu en íþróttastjórinn er allt annað en sáttur með umræðuna um liðið í bandarískum fjölmiðlum. 3. mars 2026 11:02
Almar og félagar með augu allra á sér annað kvöld Ævintýri íslenska landsliðsmannsins Almars Orra Atlasonar og félaga hans í körfuboltaliði Miami University er nú orðið að risastórri frétt í bandarískum íþróttum. 26. febrúar 2026 18:48
Almar og félagar standa einir eftir ósigraðir í háskólakörfunni Aðeins einn skóli hefur unnið alla leiki sína í bandaríska háskólakörfuboltanum í vetur og þar spilar íslenski landsliðsmaðurinn Almar Orri Atlason stórt hlutverk. 11. febrúar 2026 09:00