Ákvarðanir teknar af heift en ekki skynsemi Jakob Bjarnar skrifar 5. mars 2026 13:32 Stefán telur Kristján Þór, fyrrverandi sveitarstjóra, hafa gengið fram gegn fyrirtæki sínu Gentle Giants af miklu offorsi. Og það staðfesti nú ályktun stjórnar hafnarsjóðs Húsavíkur. vísir/samsett „Jájá, ég hef verið teiknaður upp sem leiðindagaur en ég er alinn upp við prinsippmennsku og ekki tilbúinn að láta allt yfir mig ganga,“ segir Stefán Guðmundsson forstjóri Gentle Giants. Hann fagnar því nú að menn séu farnir að sjá ljósið í áralöngu deilumáli. Nú sé mál að linni.
Stjórn Hafnasjóðs Norðurþings var afgerandi í ályktun sem samþykkt var í morgun en þar segir meðal annars: „Á árunum 2015–2020 voru teknar ákveðnar stjórnvaldsákvarðanir af þáverandi ráðamönnum Norðurþings sem eldast afar illa. Þessar ákvarðanir voru teknar af meiri heift en skynsemi og það eru þessar ákvarðanir sem eru á gjalddaga núna og við sitjum uppi með það.“ Þetta kemur fram í frétt sem Örlygur Hnefill ritstjóri Húsavíkur ritar. Þar segir enn fremur að hafnarsjóður sé í samtali við fyrirtæki sem stunda hvalaskoðun frá Húsavík og að unnið sé að því að finna lausn á málinu. „Við erum í samtali við félögin sem stunda hvalaskoðun frá Húsavík og erum að reyna að leysa úr stöðunni og vonandi náum við einhverri lausn í málinu þar sem hvalaskoðunartímabilið er að hefjast.“ Um er að ræða kröfu Gentle Giants á hendur sjóðnum sem nemur rúmum 90 milljónum króna. Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að Hafnasjóður hefði ekki haft heimild til að innheimta farþegagjald með þeim hætti sem gert var. Hæstiréttur hafnaði beiðni Hafnasjóðs Norðurþings um áfrýjunarleyfi og því stendur dómur Landsréttar óhaggaður. Í ályktuninni segir mikilvægt að sátt náist í málinu en Stefán segir að búið sé að greiða sextíu prósent upphæðarinnar sem honum voru dæmdar. Hann segir alls kyns óhæfuverk hafa verið unnin og þar hafi farið fremstir í flokki fyrrverandi sveitarstjóri, skipulagsfulltrúi og lögmaður Norðurþings. Fyrrverandi sveitarstjóri er Kristján Þór Magnússon, sem að sögn Stefáns hjólaði í Gentle Giants af mikilli ósanngirni verandi náskyldur helstu keppinautum, sem er Norðursigling, auk þess sem hann hafi verið fyrrverandi starfsmaður fyrirtækisins. Gentle Giants og Norðursigling hafa eldað grátt silfur í aldarfjórðung.
Norðurþing Sveitarstjórnarmál Stjórnsýsla Dómsmál Hafnarmál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira