Keppnir í hættu vegna stríðsins Valur Páll Eiríksson skrifar 5. mars 2026 15:31 Alls er óljóst að Formúlu 1-keppnir geti farið fram í Barein og Sádi-Arabíu í apríl. Vísir/Getty Keppnir í Formúlu 1 kappakstrinum eru í hættu vegna yfirstandandi átaka í Miðausturlöndum. Keppnir eiga að fara fram í Barein og Sádi-Arabíu í næsta mánuði en alls óvíst að þær geti farið fram.
Bæði Barein og Sádi-Arabía hafa orðið fyrir sprengjuárásum Írana eftir árásir Ísraels og Bandaríkjanna í Íran. Skotflaugar hafa hæft hótel og orkuinnviði í ríkjunum tveimur auk þess sem bandarískar herstöðvar hafa verið sérstök skotmörk árása Írans. Fjórða Formúlu 1-keppni tímabilsins á að fara fram í Barein helgina 10.-12. apríl og keppnin í Sádi-Arabíu á að fara fram í Jeddah viku síðar. Bandarísk herstöð í bareinsku höfuðborginni Manama hefur orðið fyrir sprengjuárásum Írans. Herstöðin er staðsett í Juffair hluta borgarinnar, en þar gista iðulega stór hluti starfsfólks í kringum Formúlu 1-keppnir sem fara þar fram. Formúla 1 gaf frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem segir: „Næstu þrír kappakstrar eru í Ástralíu, Kína og Japan, en ekki í Miðausturlöndum. Þær keppnir eru ekki fyrr en eftir nokkrar vikur,“ „Við munum ávallt fylgjast vel með framvindu mála og vinna náið með viðeigandi yfirvöldum þar sem öryggi þeirra sem vinna í íþróttinni er ávallt forgangsatriði.“ Fimm vikur eru þar til kappaksturinn í Barein á að fara fram en ákvörðun um hvort hann fari fram, verði aflýst eða færður til þarf að liggja fyrir í síðasta lagi tveimur vikum fyrr. Tímabilið hefst í Formúlu 1 um helgina í Melbourne í Ástralíu. Dagskráin í Formúlu 1 þessa vikuna: 5. mars 1:30 Æfing 1 (Sýn Sport Viaplay) 5:00 Æfing 2 (Sýn Sport Viaplay) 6. mars 1:30 Æfing 3 (Sýn Sport Viaplay) 5:00 Tímataka (Sýn Sport Viaplay) 7. mars 3:30 Kappakstur (Sýn Sport Viaplay)
Akstursíþróttir Mest lesið Elvar en ekki Friðriksson Körfubolti Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Íslenski boltinn Viktor fagnaði fyrsta sigrinum gegn félögum sínum í Magdeburg Handbolti Annar þjálfari hættur skömmu fyrir HM Fótbolti Árið enn fullkomið hjá sveinum Guðjóns Vals Handbolti Bræður settir í bann en fyrirliðinn sér tækifæri í skandalnum Fótbolti „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Íslenski boltinn Tekur tólf leikmenn með til Serbíu Körfubolti Fámennt lið Newcastle fyrst til að vinna lærisveina Carrick Enski boltinn „Ég er bara ekki nógu gáfaður til að geta rýnt almennilega í þessa stöðu“ Handbolti Fleiri fréttir Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa manneskju ekki aftur“ Keppnir í hættu vegna stríðsins Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ „Stormur í vatnsglasi“ Lewis Hamilton finnst skemmtilegra að keyra nýja F1-bílinn Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Sjá meira