„Það var engin hætta“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. mars 2026 20:01 Elín Klara hlóð í tólf mörk í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Elín Klara Þorkelsdóttir átti sannkallaðan stórleik er íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann gríðarlega sterkan eins marks sigur gegn Svartfellingum í undankeppni EM í kvöld. „
Tilfinningin er ótrúlega góð og ég er virkilega stolt af liðinu,“ sagði Elín Klara, sem skoraði tólf mörk fyrir íslenska liðið í kvöld. „Við mættum bara og gerðum þetta ótrúlega vel. Það er smá spennufall, ég viðurkenni það, en ég get ekki annað en verið ótrúlega stolt.“ Þrátt fyrir erfiða byrjun íslenska liðsins í leik kvöldsins gat hver sem vildi séð það að íslensku stelpurnar voru mættar til að berjast. Leikur íslenska liðsins einkenndist af mikilli orku, sem Svartfellingar réðu einfaldlega ekki við. „Ég fann það bara strax í fyrri hálfleik að við vorum bara mættar og öll orkan var með okkur. Þó við höfum fengið á okkur nokkur áhlaup í seinni hálfleik þá vorum við alltaf að fara að klára þetta. Það var engin hætta, sko. Uppleggið okkar var að við ætluðum að spila grimma og sterka vörn, og við gerðum það, og hlaupa og hlaupa. Mér fannst við bara frekar ferskar.“ Þá segir hún að íslenska liðið hafi sýnt þroskamerki með leik sínum í kvöld með því að halda ró sinni þrátt fyrir áhlaup Svartfellinga. „Nákvæmlega, og mér fannst það mjög vel gert. Við erum að þróa okkur sem lið og erum með kannski aðeins öðruvísi leikstíl. Við erum með litla leikmenn, en mér finnst við ná að vinna ótrúlega vel úr okkar styrkleikum og við gerðum það ótrúlega vel í dag.“ Næsti leikur íslenska liðsins er strax á sunnudaginn þegar Ísland mætir Svartfjallalandi í annað sinn. Sá leikur fer þó fram í Svartfjallalandi. „Við þurfum bara að reyna að sofa eins mikið og við getum á þessu ferðalagi og tökum svo gott recovery í Svartfjallalandi. En við förum þarna út bara ferskar og fullar sjálfstrausts.“ „Þetta voru bara ótrúlega mikilvæg stig hér í kvöld og við þurfum bara að halda þessu áfram og byggja ofan á þetta,“ sagði Elín að lokum.
EM kvenna í handbolta 2026 Landslið kvenna í handbolta Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira