„Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá“ Smári Jökull Jónsson skrifar 3. mars 2026 13:02 Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja segir afleiðingarnar slæmar fyrir Eyjamenn þegar ekki sé hægt að dýpka í Landeyjahöfn. Vísir/Egill Bæjarstjóri Vestmannaeyja segir stöðuna varðandi dýpkun Landeyjahafnar líta betur út í dag en í gær þegar Vegagerðin tilkynnti um bilun í dýpkunarskipi. Eyjamenn biðji ekki um meira en aðrir og óboðlegt sé að viðbragð sé ekkert þegar staða sem þessi kemur upp.
Vegagerðin tilkynnti í gær að vegna bilunar í vél dýpkunarskipsins Álfsness verði ekki hægt að vinna að dýpkun í Landeyjahöfn á næstunni. Unnið væri að því að fá varahluti erlendis frá og áætlað að viðgerði tæki 10-20 daga. Bæjarráð Vestmannaeyja fundaði aukalega í morgun til að ræða stöðuna sem upp er komin. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri Vestmannaeyja segir stöðuna líta betur út í dag en í gær. „Tímalínan er þannig að það á að koma til landsins vél og skipið á að vera orðið klárt í lok næstu viku. Það eru góðar fréttir ef það tímaplan gengur eftir,“ sagði Íris í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. „Það er það sem við munum ýta á eftir“ Þegar Álfsnes getur hafið dýpkun hafnarinnar á ný er óvíst hve langan tíma það tekur að gera Landeyjahöfn siglingahæfa þar sem Álfsnes getur aðeins dýpkað við vissar aðstæður. Á meðan Landeyjahöfn er lokuð siglir Herjólfur til Þorlákshafnar tvisvar á dag, sigling sem tekur um þrjár klukkustundir. Þegar siglt er til Landeyjahafnar eru farnar sjö ferðir á dag frá Vestmannaeyjum og munurinn því mikill fyrir Eyjamenn. „Bæjarráð ályktaði um að það er náttúrulega algjörlega óboðlegt að ekki sé neitt viðbragð. Það verður að vera viðbragð í landinu ef alvarleg bilun kemur upp í dýpkunarskipi til þess að sinna Landeyjahöfn. Það er það sem við munum ýta á eftir, bæði við innviðaráðuneytið og þingmenn.“ Staða sem ekki sé búið við Síðast var siglt til Landeyjahafnar frá Eyjum þann 20. febrúar og hægt hefur verið að sigla þangað tuttugu og sjö daga það sem af er þessu ári. Íris segir stöðuna óásættanlega fyrir íbúa Vestmannaeyja og afleiðingar vegna lokun hafnarinnar slæmar. „Þetta er bara eitthvað sem við erum búin að koma mjög hávært á framfæri og þetta er staða sem að við getum ekki búið við.“ „Við erum ekki að biðja um neitt meira en aðrir fá. Við viljum bara að það sé allt tryggt til þess að halda höfninni opinni og það gengur ekki ef það er ekki dýpkun.“ Tilboð á borðinu vegna dýpkunar næstu þrjú árin Þann 10. febrúar voru opnuð tilboð vegna dýpkunar í Landeyjahöfn til ársins 2029. Fjögur fyrirtæki buðu í verkið en áætlaður kostnaður Vegagerðarinnar er rúmir tveir milljarðar króna. Tilboð Sjótækni frá Tálknafirði var það eina sem var undir kostnaðaráætlun en tilboð fyrirtækisins var upp á tæpa 1,2 milljarða. Björgun, sem séð hefur um dýpkun síðustu árin, bauð 2,7 milljarða í verkið sem nemur um 700 milljónum yfir áætluðum kostnaði. Tilboð Jan De Nul frá Belgíu var 2,3 milljarðar og Rohde Nielsen frá Danmörku bauð 2,1 milljarð. „Vegagerðin er með þetta hjá sér,“ sagði Íris rétt áður en hún þaut upp í flugvél rétt fyrir hádegið. „Þetta er ekki á okkar borði en við viljum öflugt skip með mikla tæknilega getu.“
Landeyjahöfn Vestmannaeyjar Herjólfur Vegagerð Samgöngur Rangárþing eystra Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira