Særðir og í hefndarhug: „Erum að fara í alvöru skrímsli“ Aron Guðmundsson skrifar 2. mars 2026 13:31 Elvar Már var gjörsamlega stórkostlegur í sigri Íslands á Litáen á föstudaginn síðastliðinn. Hann þarf helst að endurtaka leikinn í dag. Vísir / Hulda Margrét Trúin á því að íslenska karlalandsliðið í körfubolta geti lagt landslið Litáen að velli öðru sinni með skömmu millibili er til staðar þegar liðin mætast í undankeppni HM ytra í dag. Strákarnir okkar búast við særðum og árásargjörnum andstæðingum í leik þar sem starf landsliðsþjálfara Litáen gæti verið undir.
Endurkomusigur föstudagsins var magnaður í meira lagi sagt. Endalokin og sigurkarfa Elvars Más eins ævintýraleg og það á móti einu af sterkasta landsliði Evrópu. Slíkir sigrar geta drifið menn upp í skýjaborgir, þar er gott að dvelja en mikilvægt um leið að koma sér aftur niður á jörðina fyrir næsta verkefni. Annan leik gegn Litáen, nú á útivelli, í sömu keppni. „Já auðvitað er það þannig en þeir eru vel gefnir,“ segir Baldur Þór, aðstoðarþjálfari landsliðsins aðspurður hvort það hafi verið verkefni að kippa mönnum aftur niður á jörðina. „En þeir vita það alveg að leikmaður sem er tólfti á listanum hjá Litáen er að spila á sama gæðastigi og Elvar Már. Hver einasti maður í liðinu hjá þeim er að spila í bestu deildum Evrópu. Það þarf fullkomnun á öllum vígstöðvum hjá okkur, okkar bestu leiki til að geta gert eitthvað á móti svona liðum.“ „Getum gert ótrúlega hluti í erfiðum aðstæðum“ Íslenska landsliðið hefur sótt svona sigra, á móti sterkum þjóðum, áður. Slíkir sigrar gefa ýmislegt.„Eins og hinir stóru sigrarnir gefur þetta enn meiri trú á verkefninu. Núna ertu með sönnun fyrir því að þú getir gert þetta. Það gefur þér ótrúlega mikið. Þetta gefur okkur meiri trú á sjálfa okkur. Við vitum að við getum gert ótrúlega hluti í erfiðum aðstæðum.“ Og erfiðar aðstæður taka á móti liðinu seinna í dag í Litáen. Uppselt er á leikinn við heimamenn sem fjölmenntu í Laugardalshöllina á föstudaginn og verða í algjörri yfirtölu í stúkunni í dag. Heimamenn vilja hefna fyrir ófarirnar hér á Íslandi. Litháar áttu oft mjög auðvelt að skora í fyrri leik liðannaVísir / Hulda Margrét „Þetta er annar leikur liðanna á skömmum tíma. Liðin þekkja því hvort annað betur núna. Það verður minna af hlutum sem kemur hvoru liðinu á óvart. Það sem við erum að fara út í er sjö þúsund manns, uppseld höll, heimavöllurinn þeirra. Þeir eru særðir eftir erfitt tap. Við erum að fara út í rosalega árásargjarnt Litáenskt lið. Þeir munu mætta rosalega harðir og árásargjarnir á báðum endum vallarins. Við þurfum að vera líkamlega, andlega og taktísktlega séð tilbúnir í þennan kraft og orku sem verður til staðar þarna. Ef við náum að standa það af okkur, spila körfuboltaleik við þá. Þá höfum við fulla trú á því að við getum náð í sigur aftur. En við þurfum að ná að halda okkur í takti við þá frá fyrstu mínútu.“ Starf þjálfarans undir? Pressan er gífurleg á litáenska landsliðinu og ekki verður unað við annað tap á nokkrum dögum gegn Íslandi.„Miðað við umræðuna í fjölmiðlum hér í Litáen og stærðinni á þessu þá reikna ég með því að þjálfarinn sé bara að spila fyrir starfi sínu í þessum leik. Þeir eru mjög særðir. Við vitum þetta, þegar lið spila tvo leiki með skömmu millibili, þá hvetur tap þig áfram til þess að gera allt sem þú getur til að bæta fyrir það. Við erum að fara í alvöru skrímsli. Það verður bara mjög krefjandi en við teljum okkur tilbúna í það. Við höfum spilað á erfiðum útivöllum áður með troðfullar hallir og nýtum þá reynslu sem við höfum úr þannig aðstæðum og komum inn í þetta með æðruleysi og einhvers konar markmið um að gera þetta að óþægilegu partýi fyrir heimamenn.“ Þrjár umferðir eru eftir af þessum hluta undankeppninnar og er Ísland á toppi D-riðils fyrir leiki dagsins. Þrjú efstu lið hvers riðils fyrir sig tryggja sér sæti í annarri umferð undankeppni HM. Leikur Litáen og Íslands í undankeppni HM í körfubolta hefst klukkan hálf fimm í dag. Leiknum verður lýst í beinni textalýsingu á Vísi.
Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira