„Við fórum bara og fundum aðrar lausnir“ Siggeir Ævarsson skrifar 1. mars 2026 21:55 Emil Barja á hliðarlínunni Vísir/Hulda Margrét Haukar heimsóttu Hlíðarenda í annað skiptið á stuttum tíma í kvöld þegar liðið vann 59-85 sigur á Val í Bónus-deild kvenna. Emil Barja, þjálfari Hauka, var sáttur við nánast allt í leik liðsins í kvöld. „
Mér fannst vörnin okkar bara alveg frábær, bara virkilega góð mest allan leikinn. Pressan leit bara vel út og þær náðu illa að brjóta hana. Við náðum að hægja bæði á þeim og ýta þeim út úr því sem þær voru að gera.“ „Svo unnum við frákastabaráttuna. Í hverjum einasta leik er það okkar markmið og ég held að við höfum unnið hana núna í fyrsta skipti í langan tíma. Það var bara snilld sko!“ Emil hefur verið tíðrætt um mikilvægi þess að stíga út og sækja fráköst en Haukaliðið var ekki það hávaxnasta í deildinni framan af vetri. Þær unnu frákastabaráttuna með þremur í kvöld. Haukar spiluðu stífa pressuvörn megnið af leiknum og gáfu Valskonum lítinn frið með boltann í höndunum en Emil vildi meina að þar hefði einhvern veginn allt fallið í rétta átt. „Þær líka svolítið drippluðu í það sem við vildum að þær drippluðu í. Við erum með ákveðna „triggera“ sem fara í gang þegar ákveðnir hlutir gerast inn á vellinum. Mér fannst við líka svolítið heppnar hvernig það spilaðist úr þessu. Þær svolítið hlupu inn í gildrurnar okkar og við litum vel út.“ Sóknin hjá Haukum var sömuleiðis mjög góð á köflum, þó sérstaklega í seinni hálfleik þar sem liðið skoraði 51 af 85 stigum sínum. „Mér fannst sóknin í fyrri hálfleik ekkert æðislegt. Þær eru fastar, drullusterkar og góðir varnarmenn, bakverðirnir sérstaklega, og voru að ná að ýta okkur úr því sem við vorum að gera. Vörnin hjá þeim var virkilega góð en við fórum bara og fundum aðrar lausnir.“ Emil talaði um það fyrir leik að margir leikmenn hefðu lítið æft fyrir leikinn vegna meiðsla en það virtist ekki há þeim neitt í kvöld. „Þær voru kannski svona spenntar að spila, voru búnar að spila svo lítið á æfingum. En nei, í rauninni ekki. Það kom mér pínu á óvart hvernig við náðum að spila í gegnum þetta.“ Hver sigur telur núna í þessum þétta pakka og það er stutt í næsta leik. „Algjörlega. Við eigum núna Njarðvík eftir einhverja fjóra daga. Ég veit nú ekki alveg hvernig aðrir leikir enduðu og í hvaða sæti við erum en þær eru efstar. Það er bara okkar næsta verkefni. Við verðum að vinna þær ef við ætlum að reyna að verða deildarmeistarar.“
Bónus-deild kvenna Körfubolti Haukar Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Sjá meira