Í öngum sínum eftir tapið á Íslandi: „Eitt neyðarlegasta tap í sögu þjóðarinnar“ Sindri Sverrisson skrifar 28. febrúar 2026 13:01 Elvar Már Friðriksson lék Litáa grátt í Laugardalshöll í gærkvöld. vísir/Hulda Margrét Litáar eru í öngum sínum eftir tapið gegn „körfuboltasmáþjóð“ í Laugardalshöll í gærkvöld. Þessi mikla körfuboltaþjóð veltir nú vöngum yfir því hvernig Íslandi tókst að vinna upp 21 stigs forskot á síðustu sjö mínútum leiksins.
Í Delfi, einum vinsælasta miðli Litáens, er gærkvöldinu lýst sem hreinni martröð. „Litáíska karlalandsliðið mátti þola eitt neyðarlegasta tap í körfuboltasögu þjóðarinnar,“ segir í grein miðilsins. Litáar voru afar fjölmennir í Laugardalshöll í gærkvöld en urðu að sætta sig við afar sárt tap. Þeir geta hefnt á mánudaginn.vísir/Hulda Margrét Í rökstuðningi segir að Ísland hafi til að mynda verið án eins af þeim þremur leikmönnum liðsins sem spili á að minnsta kosti sæmilegu stigi með sínu félagsliði, og er þar vísað til meiðsla Martins Hermannssonar. Þjálfari Litáens, Rimas Kurtinaitis, sagði hins vegar ekki um neina katastrófu að ræða. Liðið hefði gert sín mistök en spilað vel – Ísland hefði bara spilað betur. Aðspurður á körfuboltamiðlinum krepsinis.net hvort það væri samt ekki áfall að tapa „fyrir svona lítilli körfuboltaþjóð“ svaraði þjálfarinn neitandi. Hann benti á að Ísland væri ekki án leikmanna vegna Euroleague og að fleiri þjóðir lentu í vandræðum gegn Íslendingum, eins og til dæmis Ítalía sem tapaði fyrir Íslandi fyrr í keppninni. Þá benti Kurtinaitis á árangurinn sem Ísland hefði áður náð í fótbolta og að sömu einkenni væru að nýtast liðinu núna. Víkingakarakterinn. Hann gæti ekkert kvartað yfir sínu liði í gær. Á öðrum litáískum körfuboltamiðli, basketnews.lt, segir að „fíaskóið“ á Íslandi breyti plönum hjá Kurtinaitis og hans liði. Nú verði enn meiri pressa lögð á Zalgiris, stæsta félagslið landsins og eitt af liðunum í einkadeildinni Euroleague, að láta frá sér leikmenn fyrir heimaleikinn við Ísland á mánudaginn. Samkomulag hafi til að mynda verið við Zalgiris um að Azuolas Tubelis myndi bara spila annan leikjanna við Ísland en það verði nú endurskoðað. Hann skoraði 16 stig í gær. Ignas Brazdeikis og Mantas Rubstavicius, liðsfélagar hans úr Zalgiris, spiluðu einnig í gær. Basketnews segir líka í fyrirsögn að tapið í gær sé óafsakanlegt en hefur eftir Ramunas Siskauskas, sem var í Evrópumeistaraliðinu 2003, að líklega hafi menn haldið að sigurinn væri í höfn: „Það er erfitt að segja til um það utan frá en kannski var liðið byrjað að fagna sigrinum of snemma. Kannski vildu þeir bara að leikurinn yrði flautaður af og voru bara að bíða eftir því,“ sagði Siskauskas.
Landslið karla í körfubolta HM 2027 í körfubolta Tengdar fréttir Magnaðar myndir frá endurkomu aldarinnar „Endurkoma aldarinnar.“ Þannig lýsa erlendir miðlar því sem gerðist í Laugardalshöll í gærkvöld. Ljósmyndarinn Hulda Margrét var á svæðinu fyrir Vísi og tók frábærar myndir af úrslitastundinni. 28. febrúar 2026 11:03 „Þetta var eins og Guð sjálfur væri mættur á völlinn“ Fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðsins, Ægir Þór Steinarsson, átti mjög auðvelt með að útskýra stórkostlegan sigur Íslands á Litháen fyrr í kvöld. Ægir skilaði flottu framlagi, sérstaklega varnarlega, í 86-85 sigri Íslands. 27. febrúar 2026 22:58 Elvar Már: „Þetta eru þvílíkir naglar“ Elvar Már Friðriksson var stoð, stytta og hetja íslenska landsliðsins í kvöld. Hann var lang stigahæstur með 34 stig og skoraði sigurkörfuna um leið og flautan gall. Ísland vann einn glæsilegasta sigur sinnar sögu með því að leggja Litháen af velli 86-85. 27. febrúar 2026 21:58 Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Sjá meira
Magnaðar myndir frá endurkomu aldarinnar „Endurkoma aldarinnar.“ Þannig lýsa erlendir miðlar því sem gerðist í Laugardalshöll í gærkvöld. Ljósmyndarinn Hulda Margrét var á svæðinu fyrir Vísi og tók frábærar myndir af úrslitastundinni. 28. febrúar 2026 11:03
„Þetta var eins og Guð sjálfur væri mættur á völlinn“ Fyrirliði íslenska körfuboltalandsliðsins, Ægir Þór Steinarsson, átti mjög auðvelt með að útskýra stórkostlegan sigur Íslands á Litháen fyrr í kvöld. Ægir skilaði flottu framlagi, sérstaklega varnarlega, í 86-85 sigri Íslands. 27. febrúar 2026 22:58
Elvar Már: „Þetta eru þvílíkir naglar“ Elvar Már Friðriksson var stoð, stytta og hetja íslenska landsliðsins í kvöld. Hann var lang stigahæstur með 34 stig og skoraði sigurkörfuna um leið og flautan gall. Ísland vann einn glæsilegasta sigur sinnar sögu með því að leggja Litháen af velli 86-85. 27. febrúar 2026 21:58