Körfubolti

Sjáðu sigurkörfuna: „Elvar Frið­riks­son, ertu ekki að grínast“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elvar Már Friðriksson skoraði 19 stig í fjórða leikhluta eða meira en allt landslið Litháen.
Elvar Már Friðriksson skoraði 19 stig í fjórða leikhluta eða meira en allt landslið Litháen. Vísir/Hulda Margrét

Endurkoma íslenska körfuboltalandsliðsins var fullkomuð með skoti sem verður sýnt aftur og aftur um ókomna tíð. Þetta var íþróttamóment ársins og eitt af þeim stærstu í íslensku körfuboltasögunni.

Elvar Már Friðriksson skoraði í kvöld eina stærstu körfuna í sögu íslenska karlalandsliðsins þegar hann tryggði Íslandi 86-85 endurkomusigur á körfuboltastórþjóðinni Litháen í Laugardalshöllinni.

Elvar kórónaði stórskotlegan leik hjá sér með því að skora sigurkörfuna um leið og leiktíminn rann út.

Hann endaði leikinn með 34 stig og hefur aldrei skorað sjálfur meira í landsleik.

Elvar skoraði 19 stig í fjórða leikhlutanum sem Ísland vann 32-17 og skoraði því meira en allt litháíska landsliðið til samans.

Hér fyrir ofan og neðan má sjá sigurkörfu Elvars frá öllum sjónvarhornum. „Elvar Friðriksson, ertu ekki að grínast,“ skrifaði KKÍ á miðla sína og það er heldur betur hægt að taka undir það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×