Sex hundruð fastir á Akureyri eftir að áhafnir runnu út á tíma Agnar Már Másson skrifar 26. febrúar 2026 21:50 Átta farþegaþotur Icelandair lentu á Akureyrarflugvelli í dag. Áhafnir fjögurra þeirra runnu út á tíma og finna þurfti nýjar áhafnir. Vísir/Lýður Um sex hundruð farþegar um borð í fjórum Icelandair-vélum eru enn fastir á Akureyri eftir að fimmtán vélum flugfélagsins var í dag vísað á varaflugvelli vegna óveðurs í Keflavík. Nú eru áhafnir vélanna runnar út á tíma og nýjar áhafnir á leið með flugi frá Reykjavík.
Beina þurfti fimmtán farþegaþotum Icelandair á varaflugvelli í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum eftir að skyndilegur stormur skall á við Keflavíkurflugvöll síðdegis í dag. Að sögn upplýsingafulltrúa Icelandair hafði ástandið áhrif á um tvö þúsund farþega. Átta vélar lentu á Akureyri og eru fjórar þeirra nú komnar til Keflavíkur. Nú hafa áhafnir hinna fjögurra vélanna runnið út á tíma og mega því ekki taka á loft, þar sem starfsmenn hafa verið of lengi við vinnu, að sögn Icelandair. „Nýjar áhafnir á þessar vélar eru að leggja af stað með sérstakri innanlandsvél,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við Vísi. Farþegunum, sem eru um sex hundruð talsins, hafi verið hleypt af borði og inn í flugstöð, en mega sitja um kyrrt í vélunum. Stefnt sé að því að taka á loft milli klukkan 22 og 23.30. Hinar vélarnar fjórar sem lentu á Akureyri í dag eru þegar lentar í Keflavík. Ekki sjálfgefið að varaflugvellir geti tekið við slíkum fjölda Óveðrið í Keflavík skall á um klukkan 14.30 og aðstæður voru erfiðar vegna lélegs skyggnis og hvassviðris auk þess sem moka þurfti blautan snjó af flugbrautum. Um tíma hringsóluðu vélar við landið áður en þeim var fundinn varaflugvöllur. „Það sem gerðist í dag er að það komu skörp kuldaskil yfir suðvesturhorn landsins, ekki alveg samkvæmt veðurspá,“ sagði Jón Hörður Jónsson, formaður öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna, í kvöld er hann ræddi við Elínu Margréti fréttamann á Reykjavíkurflugvelli í kvöldfréttum Sýnar. „Í þessu tilfelli féll hitastig hratt á skömmum tíma. Klukkan tvö í dag var fimm stiga hiti í Keflavík og 50 mínútum síðar var komið frost. Þannig að flugskilyrði snarversnuðu.“ Flugmenn hafi þó verið upplýstir af Icelandair um hugsanlegt óveður. Jón Hörður segir ekki sjálfgefið að varaflugvellir geti tekið við slíkum fjölda farþegaþota hverju sinni. Á Egilsstöðum sé til dæmis aðeins pláss fyrir fjórar farþegaþotur. Allt „small saman“ á Reykjavíkurflugvelli Viðar Jökull Björnsson, flugvallarstjóri á Reykjavíkurflugvelli, segir að viðbragðsáætlanir hafi verið settar í gang. „Það small allt saman og fór í gang,“ sagði Viðar í samtali við Odd Ævar fréttamann í kvöldfréttum. Sautján vélum var samtals vikið frá lendingaráformum á Keflavíkurflugvelli í dag. Alls lentu sex þeirra í Reykjavík, fimm Icelandair-vélar og ein hervél. Þrjár lentu á Egilsstöðum, tvær frá Icelandair og ein frá Discovery. Fyrst stóð til að fljúga með allar vélarnar aftur til Keflavíkur en farþegum þriggja farþegaþota Icelandair í Reykjavík var á endanum hleypt frá borði í kvöld. Aftur á móti var farþegum um borð í tveimur Icelandair-þotum frá Bretlandi ekki hleypt frá borði þar sem Bretland er utan Schengen-svæðisins. Auk þess aflýsti félagið fimm flugferðum, þar af þremur til Bandaríkjanna. Minnir á þegar gaus í Eyjafjallajökli Átta Icelandair-vélar lentu svo á Akureyri. „Að það séu hérna átta þotur á sama tíma, þessi staða hefur ekki komið upp áður,“ sagði Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi flugumferðarstjóri, í kvöldfréttum en hann ræddi við Tómas Arnar fréttamann á Akureyri. „Við þurfum að vera með athygli á þessu.“ Flugumferðarstjóri man ekki eftir öðru eins, nema þegar gaus. „Þetta var svolítil gusa núna sem kom vegna veðurs í Keflavík,“ sagði Halla Björk Reynisdóttir flugumferðarstjóri. Og manstu eftir öðru eins? „Kannski ekki þessu líkt nema þegar gaus á sínum tíma,“ bætir hún við en þegar Eyjafjallajökull gaus árið 2010 var flugumferð beint að Akureyrarvelli þar sem Reykjavíkurflugvöllur og Keflavíkurflugvöllur stóðu lokaðir
Icelandair Akureyrarflugvöllur Keflavíkurflugvöllur Isavia Fréttir af flugi Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira