Börnum með stöðu sakbornings fjölgar: „Sláandi tölur“ Sunna Sæmundsdóttir skrifar 26. febrúar 2026 11:54 176 börn voru með stöðu sakbornings í ofbeldisbrotamálum í fyrra. Árið 2015 voru þau 65. vísir/Einar Börnum sem hafa stöðu sakbornings í ofbeldisbrotamálum hjá lögreglu hefur fjölgað verulega á síðustu árum og umboðsmaður barna segir þróunina sláandi. Hún veltir fyrir sér hvort viðvarandi bið eftir nær öllum úrræðum hafi áhrif.
Samkvæmt nýrri tölfræði umboðsmanns barna bíða nærri tvö þúsund og fimm hundruð börn eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna. Hátt í átta hundruð bíða til að mynda eftir athugun vegna gruns um einhverfu og meðalbiðtími þeirra er þrjú ár. „Það er gríðarlega langur tími í lífi barns,“ segir Salvör Nordal, umboðsmaður barna. Þá bíða á þriðja hundrað börn eftir sálfræðiþjónustu hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og yfir sjö hundruð bíða greiningar hjá Ráðgjafar- og greiningarmiðstöð. Salvör Nordal er umboðsmaður barna.Vísir/Einar Bið er eftir nær öllum úrræðum fyrir börn. Fyrst er það oftast bið eftir greiningu og svo tekur annar biðlisti við. „Þegar greiningarnar liggja fyrir og það er búið að samþykkja og staðfesta að þau þurfi á stuðningi að halda fá þau ekki stuðninginn sem búið er að bíða eftir í allan þennan tíma.“ Jákvæð teikn eru þó sums staðar á lofti. Þrátt fyrir langan biðtíma hjá Geðheilsumiðstöð fækkaði nú börnum á biðlista í fyrsta sinn á milli mælinga. Hingað til hefur þeim fjölgað í hverri mælingu. Salvör vonar að aðgerðir sem hafa falist í að fjölga starfsfólki og auka fjármagn í ákveðnum úrræðum séu farnar að bera árangur. Ástandið sé engu að síður óásættanlegt og brýnt sé að stytta biðina þvert á kerfið. „Þannig að við náum því að halda í viðmið landlæknis um að börn bíði ekki lengur en þrjá mánuði eftir þjónustu.“ Hjá Geðheilsumiðstöð barna bíða 2.453 börn eftir þjónustu. Þar af hafa 1.900 beðið lengur en þrjá mánuði.vísir/Vilhelm Í tölfræðinni er einnig litið til fjölda barna er tengjast ofbeldismálum hjá lögreglu. Í fyrra voru 176 börn með stöðu sakbornings í ofbeldisbrotamáli og 29 með stöðu sakbornings í kynferðisbrotamáli. Til samanburðar höfðu 65 börn stöðu sakbornings í ofbeldisbrotamálum árið 2015. Um verulega fjölgun á síðastliðnum áratug er að ræða. „Það þyrfti að greina þær tölur enn betur til þess að geta gripið til nauðsynlegra aðgerða, því að þetta eru sláandi tölur,“ segir Salvör. „Auðvitað veltir maður því fyrir sér að hvaða leyti þessi bið eftir þjónustu getur haft. Bið eftir alls kyns úrræðum getur valdið vanda á öðrum sviðum og maður veltir fyrir sér hvernig þetta tengist innbyrðis. Það eru svo víða vandamál og í mörgum tilvikum þá kannski hanga málin örugglega meira saman, þannig að við erum að sjá vanda á einum stað koma fram á allt öðrum. Þannig að þetta þarf auðvitað að greina og skoða miklu betur,“ segir Salvör.
Börn og uppeldi Ofbeldi barna Heilbrigðismál Geðheilbrigði Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira