„Þegar við erum góðar finnst mér við vera frábærar“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. febrúar 2026 22:34 Jónatan Þór Magnússon, þjálfari KA/Þórs. Vísir/Daníel Þór Jónatan Þór Magnússon, þjálfari KA/Þórs, var stoltur af sínum konum þrátt fyrir sjö marka tap gegn Val í undanúrslitum Powerade-bikars kvenna í handbolta í kvöld. „
Eins skringilega og það hljómar þá fannst mér við vera frábærar í langan tíma. Ekki nógu langan, en það sem ég vonaðist eftir fékk ég,“ sagði Jónatan í leikslok. „Mér fannst við geisla af krafti og orku og þannig sá ég þetta fyrir mér. Mér fannst við vera óheppnar að vera undir í hálfleik því við áttum fín færi og skot sem fóru í stöng eða slá. En sóknarlega í fyrri hálfleik fannst mér við vera frábærar. Við hefðum þurft aðeins þéttari vörn þá en heilt yfir fannst mér við vera bara nokkuð góðar. Svo verður þetta erfiðari í seinni hálfleik þegar vörnin hjá þeim þéttist. En ég er alls ekki óánægður með það sem við vorum að gera. Auðvitað eru tapaði boltar og annað sem ég hefði viljað sleppa. Þá hefðum við hangið inni í þessu og gefið þeim leik. Til að vinna Val þá þurfa þær að vera ekki á sínum degi og við að vera frábærar. Mér fannst við vera frábærar en þá voru þær það bara líka.“ Hann segir þó að líklega hafi það tekið of mikið úr sínu liði að þurfa að elta Valsliðið allan leikinn. „Já, það gerir það. Það hefði auðvitað verið þægilegra að vera að leiða. Þannig var það hjá okkur þegar við spiluðum við þær fyrir norðan. Þá náðum við frumkvæðinu. En þær eru náttúrulega bara rosalega öflugar og með mikla breidd. Það var svo mikil orka í mínu liði og eftir á að hyggja hefðum við kannski átt að hægja meira á í fyrri hálfleik, eins asnalega og það hljómar.“ „En Valsliðið er bara frábært, vel þjálfað og með frábæra breidd. En við sýndum það í kvöld að topplevelið okkar er að hækka. Þegar við erum góðar finnst mér við vera frábærar, en við vitum það að þegar mistökin koma þá er botnlevelið ekki gott. Við þurfum að reyna að finna eitthvað jafnvægi á það.“ Jónatan gerði þó fleira en bara að hrósa liðunum í leikslok og fór einnig yfir það sem sínar konur hefðu getað gert mun betur. „Varnarlega til dæmis, af því að við höfum verið frábært varnarlið, í fyrri hálfleik náum við alltaf bara næstum því í þær. Við náum ekki alveg að stoppa þær og þær opnuðu hægra hornið held ég sex eða sjö sinnum bara í fyrri hálfleik. Það situr aðeins í mér. Það vantar herslumuninn varnarlega til að fá stoppin. Við fáum líka ekki mikla markvörslu, en það helgast náttúrulega líka af því að vörnin er ekki alveg nógu þétt.“ „Svo í seinni hálfleik erum við að tapa boltanum of mikið og erum að tapa honum illa. Við förum illa með það og um leið og við töpum boltanum þá er erfitt. Við ætluðum svo sem að reyna að halda því í lágmarki. Það er auðvelt að segja það en oft erfiðara að framkvæma það.“ Þrátt fyrir að KA/Þór sé ekki á leið í úrslit bikarsins er liðið enn í hörkubaráttu í Olís-deild kvenna, þar sem liðið situr í sjötta sæti þegar þrjár umferðir eru eftir. Hann segir að liðið taki gott veganesti úr þessum leik með sér inn í baráttuna í deildinni. „Ég er sannfærður um það að þessi reynsla muni nýtast okkur. Það hafa ekkert margar stelpur í þessu liði spilað svona leiki, þrátt fyrir að KA/Þór hafi verið í úrslitum. Ég var að taka það saman og ég held að það séu þrjár eftir sem voru síðast í þessu. Þannig að liðið er ekkert með mikla reynslu. Nú erum við að fara í síðustu leikina í deildinni og svo úrslitakeppni, þannig að já, ég vona að þessi upplifun og þessi kraftur sem liðið sýndi á löngum köflum hjálpi okkur í því sem kemur næst,“ sagði Jónatan að lokum.
Powerade-bikarinn KA Þór Akureyri Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Fleiri fréttir „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sjá meira