Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni Sif Sigmarsdóttir skrifar 26. febrúar 2026 07:03 Sif Sigmarsdóttir er með vikulega pistla á Vísi. Vísir/Sara Rut Að skrifa þessa pistla er stundum eins og að vera með harðlífi. Sama hvað ég rembist við að kreista fram hugmyndir koma þær ekki. Það verður því að teljast gráglettið, að fátt losar hraðar um ritstífluna en að þurfa að standa upp til að fara á klósettið.
Í Innherja á Vísi í vikunni mátti lesa aðsenda grein um meint mikilvægi skilvirkni. „Tími er peningar,“ fullyrti höfundur og vísaði í Benjamin Franklin sem sagði þann „sem gæti unnið sér inn tíu skildinga á dag“ en kysi „að sitja á kránni í hálfan dag“ væri „í raun að kasta fimm skildingum beint út um gluggann.“ Miðlaði hann af visku stjórnunarfræðinga sögunnar sem fullyrtu að: Annað hvort fjárfestum við tíma okkar eða eyðum honum. Sérhver mínúta sem ekki er nýtt er fórnarkostnaður. Þeir sem ná árangri hafa ekki fleiri klukkustundir en við hin, þeir stýra þeim bara betur. Sífellt fleiri virðast útbrunnir í eigin skipulagsleysi. Kvað greinarhöfundur tímastjórnun lausn vandans og sagðist enga skemmtilegri þversögn hafa heyrt en fullyrðingar fólks um að það hefði ekki tíma fyrir tímastjórnun. En er tímastjórnun sá heilagi kaleikur sem stjórnunarfræðingar vilja vera láta? Alkóhólisti sem fékk borgað fyrir að skrifa um vín Oliver Burkeman, breskur blaðamaður, varði mörgum árum af lífi sínu í að leita leiða til að spara tíma. Burkeman skrifaði pistla í dagblaðið Guardian þar sem hann miðlaði ráðum til lesenda um hvernig auka mætti afköst við hið daglega amstur, í vinnunni og frítímanum. Er tímastjórnun sá heilagi kaleikur sem stjórnunarfræðingar vilja vera láta?GETTY Hann kvaðst hafa verið eins og alkóhólisti sem fékk borgað fyrir að skrifa um vín, stöðugt á höttunum eftir næsta skammti af tímasparnaði. „Þegar ég prófaði nýja aðferð leið mér eins og gullöld væri við það að hefjast í lífi mínu, full af ró, ótrufluðum afköstum og innihaldsríkri iðju,“ sagði Burkeman sem prófaði meðal annars að skipta deginum í 15 mínútna einingar, svara öllum tölvupóstum um leið og þeir bárust og að búta „to-do“ listann niður í mismunandi dálka. En gullöldin kom aldrei að sögn Burkemans. Hann varð þvert á móti stressaðri með hverju ráðinu sem hann þáði. Burkeman ákvað að snúa við blaðinu. Í metsölubók sinni, Fjögur þúsund vikur, varar hann við tímastjórnunarkerfum. „Sá dagur mun aldrei koma að þér takist að ná tökum á hlutunum,“ segir Burkeman í bókinni. Bendir hann á að okkur séu aðeins gefnar fjögur þúsund vikur á þessari jörðu, verðum við svo lánsöm að ná áttræðisaldri. Þá staðreynd segir hann ekki skilaboð um að við þurfum að skipuleggja tíma okkar betur heldur þvert á móti að við eigum að sleppa því að gera fleira. Syndaselur eða vitringur? „Að vera, eða ekki vera,“ segir í Hamlet. Samtíminn virðist hins vegar hverfast í auknum mæli um „að gera, eða ekki gera“. Innan vébanda stjórnunarfræða er hinn stærsti syndaselur slæpinginn á kránni. Frá sjónarhóli annarrar vísindagreinar horfir málið hins vegar öðruvísi við. Um síðustu aldamót gerðu taugalæknar, sem skoðuðu myndir í heilaskanna, óvænta uppgötvun. Löngum var talið að lítil virkni ætti sér stað í mannsheilanum þegar við gerum ekki neitt. Þegar myndirnar voru skoðaðar uppgötvaðist hins vegar svo kallaður „hlutlaus gír“ heilans (e. „default mode“). Heilar að störfum á tískuvikunni í London um helgina.GETTY Í ljós kom að þegar við látum af skipulögðum verkum og hugurinn fær að reika, á sér stað nauðsynleg úrvinnsla í heilanum. Ekki aðeins er þessi vinna mikilvæg fyrir andlega endurnýjun heldur leiðir hún gjarnan til óvæntra tenginga, nýrra hugmynda og lausna á vandamálum sem virtust óyfirstíganleg þar sem við þjösnuðumst áfram í fimmta gír við að finna pistlahugmynd, alveg í spreng því nýjasta tímastjórnunarkerfið kvað á um að við ættum að vinna í tuttugu og fimm mínútna skorpum sem ekki mætti rjúfa. Tími þinn Stjórnunarfræðingar líta á tímann sem auðlind sem þarf að virkja. Oliver Burkeman segir tímann líf sem ber að lifa. Hvort er tími þinn?
Samhengið með Sif Vinnumarkaður Vinnustaðurinn Atvinnurekendur Efnahagsmál Menning Bókmenntir Vísindi Tengdar fréttir Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sagt er að hláturinn lengi lífið. Skotinn Michael Mcfeat mun hins vegar hugsa sig tvisvar um áður en hann segir brandara aftur. 19. febrúar 2026 07:00 Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns? 12. febrúar 2026 07:01 Drengurinn sem dó Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir. 5. febrúar 2026 07:01 Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða. 29. janúar 2026 07:00 Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Ég sat skömmustuleg við eldhúsborðið og skrollaði á Facebook yfir afgöngum af jólakonfekti – þar fór súkkulaði- og samfélagsmiðlabindindi janúarmánaðar fyrir bí – þegar mér svelgdist skyndilega á. 22. janúar 2026 07:01 Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Ert þú sama manneskja í dag og þú varst í gær? Samkvæmt bandaríska félagssálfræðingnum Daniel Gilbert nálgumst við framtíðarútgáfuna af sjálfum okkur eins og börnin okkar. 15. janúar 2026 07:00 Ný skólína frá Nike: Air Inga – „just do it“ Ég ætlaði að byrja árið á jákvæðu nótunum. Staðreyndin er hins vegar sú að það borgar mér enginn laun fyrir að breiða út gleði. Eitt er það sem ég þoli verr við janúar en veðrið og Vísa-reikninginn. Ég hef skömm á öllum dálksentímetrum dagblaðanna sem fara undir völvu ársins. 9. janúar 2026 07:02 Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Þegar þetta er skrifað stend ég frammi fyrir félagslega flóknu úrlausnarefni. 18. desember 2025 07:01 Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Í fyrra fóru fram sveitarstjórnarkosningar í Bretlandi. Við upphaf talningar blasti við að Íhaldsflokkurinn hafði beðið afhroð. Það aftraði þó ekki flokksjálkum frá því að halda öðru fram í kosningasjónvarpinu. 11. desember 2025 07:01 Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Ég var á leiðinni í göngutúr í vikunni og vantaði hlaðvarp til að hlusta á. Ég bað ChatGPT um meðmæli. Gervigreindarforritið var ekki lengi að grafa upp hlekki á fimm áhugaverð hlaðvörp um efni sem ég hafði tilgreint, birta um þau útdrátt og tilvitnanir í viðmælendur. 4. desember 2025 07:01 Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? Árið 2015 greindi breski rithöfundurinn Matt Haig aðdáendum frá umfjöllunarefni næstu bókar sinnar á Twitter. Viðbrögðin urðu önnur en hann ætlaði. 27. nóvember 2025 07:02 Nýsloppin við vinstra vókið þegar það hægra mætti „Allar konur breytast að endingu í móður sína – það er þeirra harmleikur,“ ritaði Oscar Wilde. 20. nóvember 2025 07:01 Lögmálið um lítil typpi Djúpvitur kona gaf mér eftirfarandi heilræði í kjölfar þess að ég greindi henni frá tilvistarlegri áskorun sem ég stend frammi fyrir: „Þú átt ekki að vera að elta lítil typpi,“ sagði hún. 13. nóvember 2025 07:01 Mest lesið Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni Lífið Á batavegi fimmtán svæfingum og sex aðgerðum síðar Lífið „Ég var að fatta að þú ert edrú“ Lífið Segir Glover hafa blekkt sig, kyrkt og kastað út Lífið Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin Lífið Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Tónlist Ástin sögð kviknuð hjá sáttasemjurum Lífið Gengst við framhjáhaldi með tveimur rússneskum konum Lífið Dóttir Short fannst látin Lífið Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Menning Fleiri fréttir Segir Glover hafa blekkt sig, kyrkt og kastað út Á batavegi fimmtán svæfingum og sex aðgerðum síðar 10cc spilar á Íslandi í sumar Kosning hafin fyrir Hlustendaverðlaunin „Ég var að fatta að þú ert edrú“ Klósettferðin sem getur bjargað þér frá því að brenna út í vinnunni Gengst við framhjáhaldi með tveimur rússneskum konum Ástin sögð kviknuð hjá sáttasemjurum Dóttir Short fannst látin Svona átt þú að haga þér í launaviðtali KK aldrei borgað minna í húsnæðislán en þegar Bjarni var ráðherra Kveður Emily fyrir Audrey Hepburn Íslensk hjón búa umkringd öryggisvörðum Körfuboltaþjálfari selur á Nesinu Lizzie McGuire-stjarnan Robert Carradine látinn Föst með dauða tölvu og reynir að undirbúa stjórnarfund Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna „Íslensk snjókoma“ og ruslabílarnir nýttir í moksturinn Farin frá Form Henti keilukúlu, melónu og örbylgjuofni niður úr átta metra hæð Sneri lífi sínu við eftir að faðir hans fyrirfór sér Eyþór Arnalds og Ástríður bíða eftir barni Stjörnulífið: Sjóðheitar í gusugufu Flestir fróa sér til viðbótar við kynlíf með maka „Hugurinn skiptir öllu máli“ Við erum tengdari en nokkru sinni en höfum aldrei verið jafn einmana Fékk yfir hundrað skilaboð á dag Krakkatía vikunnar: Bollur, sólmyrkvar og skilti Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Áhorfið rýkur upp þegar minnst er á Ísland Sjá meira
Í sárum yfir brandara um hrossatyppi Sagt er að hláturinn lengi lífið. Skotinn Michael Mcfeat mun hins vegar hugsa sig tvisvar um áður en hann segir brandara aftur. 19. febrúar 2026 07:00
Menn sem murka lífið úr öndunum á Tjörninni Samkvæmt samfélagsmiðlanotanda í Garðabæ þorir fólk varla lengur út af heimilum sínum í London vegna yfirgangs glæpalýðs og innflytjenda. Ég leit af Twitter og út um gluggann heima hjá mér þar sem ég bý í London. Allt virtist með kyrrum kjörum. En hvað var þetta? Gat verið að þarna færi maður sem murkaði lífið úr svani og lagði hann sér svo til munns? 12. febrúar 2026 07:01
Drengurinn sem dó Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir. 5. febrúar 2026 07:01
Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Klukkan var að ganga ellefu. Eins og metnaðarfullum sjálfstætt starfandi blaðamanni er lagið sat ég enn á náttfötunum í sófanum heima hjá mér og horfði á það besta sem sjónvarpsútsendingar um hábjartan dag hafa upp á að bjóða. 29. janúar 2026 07:00
Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Ég sat skömmustuleg við eldhúsborðið og skrollaði á Facebook yfir afgöngum af jólakonfekti – þar fór súkkulaði- og samfélagsmiðlabindindi janúarmánaðar fyrir bí – þegar mér svelgdist skyndilega á. 22. janúar 2026 07:01
Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Ert þú sama manneskja í dag og þú varst í gær? Samkvæmt bandaríska félagssálfræðingnum Daniel Gilbert nálgumst við framtíðarútgáfuna af sjálfum okkur eins og börnin okkar. 15. janúar 2026 07:00
Ný skólína frá Nike: Air Inga – „just do it“ Ég ætlaði að byrja árið á jákvæðu nótunum. Staðreyndin er hins vegar sú að það borgar mér enginn laun fyrir að breiða út gleði. Eitt er það sem ég þoli verr við janúar en veðrið og Vísa-reikninginn. Ég hef skömm á öllum dálksentímetrum dagblaðanna sem fara undir völvu ársins. 9. janúar 2026 07:02
Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Þegar þetta er skrifað stend ég frammi fyrir félagslega flóknu úrlausnarefni. 18. desember 2025 07:01
Hvert er burðarþol íslensks almennings fyrir kjaftæði? Í fyrra fóru fram sveitarstjórnarkosningar í Bretlandi. Við upphaf talningar blasti við að Íhaldsflokkurinn hafði beðið afhroð. Það aftraði þó ekki flokksjálkum frá því að halda öðru fram í kosningasjónvarpinu. 11. desember 2025 07:01
Erum við of heimsk til að nota gervigreind? Ég var á leiðinni í göngutúr í vikunni og vantaði hlaðvarp til að hlusta á. Ég bað ChatGPT um meðmæli. Gervigreindarforritið var ekki lengi að grafa upp hlekki á fimm áhugaverð hlaðvörp um efni sem ég hafði tilgreint, birta um þau útdrátt og tilvitnanir í viðmælendur. 4. desember 2025 07:01
Er þetta hinn nýi hvíti karlmaður? Árið 2015 greindi breski rithöfundurinn Matt Haig aðdáendum frá umfjöllunarefni næstu bókar sinnar á Twitter. Viðbrögðin urðu önnur en hann ætlaði. 27. nóvember 2025 07:02
Nýsloppin við vinstra vókið þegar það hægra mætti „Allar konur breytast að endingu í móður sína – það er þeirra harmleikur,“ ritaði Oscar Wilde. 20. nóvember 2025 07:01
Lögmálið um lítil typpi Djúpvitur kona gaf mér eftirfarandi heilræði í kjölfar þess að ég greindi henni frá tilvistarlegri áskorun sem ég stend frammi fyrir: „Þú átt ekki að vera að elta lítil typpi,“ sagði hún. 13. nóvember 2025 07:01