Tólf sagt upp hjá Sjúkratryggingum Atli Ísleifsson skrifar 25. febrúar 2026 14:50 Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga. Vísir/Egill Nýtt skipurit hefur verið samþykkt hjá Sjúkratryggingum sem felur í sér fækkun skipulagseininga þar sem dregið er úr yfirbyggingu og stjórnendum fækkað. Samhliða breytingunum hefur verið ákveðið að leggja niður tólf störf hjá Sjúkratryggingum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sjúkratryggingum. Þar segir að ákvörðunin miði að því að laga rekstur að breyttum áherslum, nýta betur það fjármagn sem stofnunin hafi til ráðstöfunar og bregðast við undirliggjandi hallarekstri. „Markmiðið er að styrkja starfsemina til lengri tíma og tryggja að Sjúkratryggingar geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu með markvissum og ábyrgum hætti.“ Verulega umbætur Í tilkynningunni segir að undanfarin ár hafi verið gerðar verulegar umbætur í starfsemi Sjúkratrygginga sem skilað hafi aukinni skilvirkni og eflingu lykilþátta í starfsemi stofnunarinnar. „Þörf er á því að ganga lengra í að efla stofnunina með aukinni sérhæfingu, stafrænni þróun og skilvirkari ferlum. Sérstaklega verður horft til kjarnaverkefna stofnunarinnar með styrkingu samningagerðar, markvissari kostnaðar- og þarfagreiningu ásamt öflugri eftirfylgni samninga og eftirliti. Þrátt fyrir að fjárhagur stofnunarinnar hafi verið styrktur nokkuð á undanförnum árum hafa verkefni hennar vaxið og ljóst að erfitt er að mæta vaxandi umfangi ásamt því að byggja upp og styrkja lykilþætti í starfsemi stofnunarinnar innan núverandi fjárhagsramma. Það er í senn þörf á styrkingu fjárveitinga og innri hagræðingu. Í þessu ljósi hefur verið ákveðið að styrkja enn starfsemi og afkomu stofnunarinnar með nokkrum lykilaðgerðum sem m.a. fela í sér aukana áherslu á kjarnaviðfangsefni á sviði samningsgerðar og eftirfylgni samninga og meiri skilvirkni með öflugri stafrænum lausnum og sjálfvirkni í afgreiðslu. Þá hefur stjórn Sjúkratrygginga samþykkt nýtt skipurit stofnunarinnar sem felur í sér fækkun skipulagseininga og dregið verður úr yfirbyggingu m.a. með fækkun stjórnenda. Um leið verður sérþekking og samhæfing á fagsviðum styrkt. Þörf er á frekari umbreytingu og ekki verður hjá því komist að leggja niður tólf störf hjá Sjúkratryggingum. Sú ákvörðun miðar að því að laga rekstur að breyttum áherslum, nýta betur það fjármagn sem stofnunin hefur til ráðstöfunar og bregðast við undirliggjandi hallarekstri. Markmiðið er að styrkja starfsemina til lengri tíma og tryggja að Sjúkratryggingar geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu með markvissum og ábyrgum hætti,“ segir í tilkynningunni. Erfið en ábyrg skref Haft er eftir Sigurði Helga Helgasyni, forstjóra Sjúkratrygginga, að Sjúkratryggingar gegni lykilhlutverki í því að tryggja almenningi aðgengi að góðri og árangursríkri heilbrigðisþjónustu og það varði almenning miklu að hún gegni hlutverkum sínum með öflugum hætti. „Stofnunin tekur nú erfið en jafnframt ábyrg skref til að efla starfsemi og laga hana að breyttum verkefnum og auknum kröfum. Með skýrari forgangsröðun, einfaldara skipulagi og aukinni sérhæfingu styrkjum við hæfni stofnunarinnar og tryggjum að hún standi betur undir hlutverki sínu til framtíðar.“ segir Sigurður Helgi.
Sjúkratryggingar Vinnumarkaður Rekstur hins opinbera Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Sjá meira