Innherji

Kemur „mjög á ó­vart“ að stjórn ISB treysti sér ekki til að standa við sam­komu­lagið

Hörður Ægisson skrifar
Bjarni Ármannsson, annar stærsti hluthafi Skaga, og Heiðar Guðjónsson, nýlega kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka og stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi bankans.
Bjarni Ármannsson, annar stærsti hluthafi Skaga, og Heiðar Guðjónsson, nýlega kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka og stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi bankans.

Stóru lífeyrissjóðirnir sem eru í þeirri stöðu að eignarhald þeirra þverast með svipuðum hætti í Íslandsbanka og Skaga eru fremur fámálir um þá ákvörðun að samrunaviðræðum hafi verið slitið, á meðan afstaða sumra annarra sjóða litast af því hvar hagsmunir þeirra vega hlutfallslega meira. Stærsti einkafjárfestir Skaga segir það koma „mjög á óvart“ að stjórn Íslandsbanka hafi ekki treyst sér til að standa við samkomulagið en hún fór fram á verulegar breytingar á skiptihlutföllum við samruna félaganna sem yrði aðlagað með tilliti gengishækkunar á bréfum bankans og gagngjaldið að hluta greitt með reiðufé.


Tengdar fréttir

Norræni bankinn ABG SC væri „afar áhuga­verður kostur“ fyrir Ís­lands­banka

Áform Íslandsbanka um að ráðstafa mögulega allt að fimmtán milljörðum af umfram eigin fé sínu til fjárfestinga erlendis vekja sérstaklega athygli, að sögn hlutabréfagreinenda, sem telur að kaup á norræna fjárfestingabankanum ABG Sundal Collier væri „afar áhugaverður kostur“ í því samhengi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×