Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Jón Þór Stefánsson skrifar 22. febrúar 2026 22:32 Þessi mynd er tekin í Michoacán-héraðinu í kjölfar andláts El Mencho. AP Glæpaforinginn Rubén Nemesio Oseguera, sem var betur þekktur sem El Mencho, lést fyrr í dag eftir að hafa verið skotinn í bardaga við Mexíkóska herinn.
Nú, í kjölfar drápsins, ríkir ófremdarástand víða í Mexíkó, líkt og sjá má meðal annars á myndbandinu hér fyrir neðan, sem sýnir eld- og reykhaf við verslun Costco. Así el Costco de Puerto Vallarta, Jalisco. No salgan de sus casas u hoteles. pic.twitter.com/OaAh6SWCcq— Joaquín López-Dóriga (@lopezdoriga) February 22, 2026 Samkvæmt El País var El Mencho bæði eftirlýstasti og hættulegasti fíkniefnabarón í heimi. Áður hafði yfirmaður fíkniefnalögreglu Bandaríkjanna lýst honum sem valdamesta manninum í fíkniefnaheiminum. Vísir fjallaði ítarlega um El Mencho í haust. Þá umfjöllun má finna hér. El Mencho var skotinn eftir að átök brutust út í Jalisco-héraði Mexíkó milli skósveina glæpaforingjans og hersins, sem var þar í leynilegri aðgerð. Auk Oseguera létust fjórir meðlimir í gengi hans, Jalisco New Generation Cartel eða CJNG, í átökunum. Tveir aðrir meðlimir gengisins eru alvarlega slasaðir, og þá særðust þrír hermenn. Meðlimir Jalisco New Generation Cartel hafa kveikt í bílum og stöðvað umferð.AP Samkvæmt BBC var El Mencho lögreglumaður á árum áður. Hann sneri sér hins vegar að glæpum og stóð í gríðarlum flutningum á kókaíni, metamfetamíni og fentanýli til Bandaríkjanna. Bandarísk stjórnvöld höfðu boðið fimmtán milljónir Bandaríkjadala í skiptum fyrir upplýsingar sem myndu leiða til handtöku El Mencho. Bandaríkin munu hafa gefið Mexíkóskum yfirvöldum upplýsingar áður en ráðist var í umrædda heraðgerð. CJNG-gengið hefur brugðist illa við aðgerð hersins og dauða foringja síns. Í minnst átta mismunandi ríkjum Mexíkó hafa meðlimir hópsins kveikt í bílum og stöðvað umferð bíla. Sums staðar hefur fólk verið beðið um að halda sig alfarið inanndyra.
Mexíkó Erlend sakamál Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira