Leggja til vantraust á hendur Silju Báru Jón Þór Stefánsson skrifar 22. febrúar 2026 18:17 Silja Bára er rektor Háskóla Íslands. Silja Bára R. Ómarsdóttir Meðlimir Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands, sem eru í meirihluta í ráðinu, hafa lagt fram tillögu um að lýst verði yfir vantrausti á hendur Silju Báru Ómarsdóttur rektor Háskólans. Ástæða þess er meint ábyrgðarleysi í hækkun skrásetningargjalda.
Tillagan verður tekin til umræðu á fundi Stúdentaráðs næstkomandi þriðjudag, þann 24. febrúar klukkan 17:30. „Það er óásættanlegt að rektor Háskóla Íslands stuðli að hækkun skrásetningargjalda og er þar af leiðandi þess valdandi að fjármögnun Háskóla Íslands sé í meira mæli orðið hlutverk stúdenta í stað stjórnvalda,“ segir í tillögu Vökuliða, en ákvörðunin er sögð draga úr jafnrétti og hvata til náms. Ofan á það auki hún fjárhagsbyrðar stúdenta sem þegar standi höllum fæti. „Brýtur rektor þar með eitt af grunngildum Háskóla Íslands og tekur ákvarðanir þvert á vilja og baráttu stúdenta til margra ára,“ segir í yfirlýsingunni. „Það er að auki ábyrgðarlaust að ráðast í þessa hækkun í ljósi þess að gjaldið hefur ekki staðið á traustum grunni í tæp þrjú ár, allt frá því að Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema úrskurðaði innheimtu gjaldsins ólögmæta.“ Þá segis ráðið kalla eftir rektor sem hafi raunverulegan áhuga á hagsmunum stúdenta „Það er ekki ásættanlegt á Íslandi að fjárhagsleg staða fólks komi í veg fyrir þekkingarleit og menntun.“ Silja Bára tók við sem rektor Háskóla Íslands í júní síðastliðnum.
Háskólar Hagsmunir stúdenta Skóla- og menntamál Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Sjá meira