Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 21. febrúar 2026 08:45 Narsaq er að finna í sveitarfélaginu Kujalleq og telja íbúar bæjarins um 1.500. Getty Nokkrar grænlenskar heimasíður urðu fyrir svokallaðri dreifðri álagsárás í gær, þeirra á meðal er heimasíða fjölmennasta sveitarfélags landsins.
Heimasíður sveitarfélaganna Sermersooq og Kujalleq lágu niðri í gær vegna dreifðrar álagsárásar. Þær fela í sér að slíkum fjölda beiðna er beint að tiltekinni heimasíða að þjónustan rofni. Styrelsen for Samfundssikkerhed, danskar almannavarnir, greindu frá því um hádegisbilið í gær en samkvæm umfjöllun danska ríkisútvarpsins stendur rússneski tölvuþrjótahópurinn NoName057(16( að baki árásunum. Ekki hefur komið fram í umfjöllunum danska og grænlenska ríkisútvarpsins hvaða síður það voru sem urðu fyrir þessum árásum en minnst tveggja sveitarfélaga lágu niðri um stund. Samkvæmt því er fram kemur í umfjöllun KNR ber sami hópur ábyrgð á netárásum sem gerðar voru á heimasíður danskra sveitarfélaga og ráðuneyta í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga þar í landi í nóvember á síðasta ári. TV2 greinir frá því að hópurinn, sem hefur framið ítrekaðar tölvuárásir á lönd sem þau telja grafa undan hagsmunum Rússlands frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu, hafi lýst yfir ábyrgð á árásunum á spjallrás sinni á Telegram. Þar kemur fram að árásin hafi verið gerð til að hefna fyrir það að danska ríkið hafi gefið Úkraínumönnum orrustuþotur. Grænlenska landsstjórnin gaf út yfirlýsingu vegna árásanna þar sem hún segir að þær hafi ekki valdið varanlegum skaða né tapi á gögnum. Þjónusturof á heimasíðum hafi í raun verið eina afleiðing þeirra. „Við fylgjumst náið með stöðunni og erum í stöðugum samskiptum við viðeigandi embætti sem eru að rannsaka málið. Ég undirstrika að svona árásir eru ekki hættulegar,“ er haft eftir Peter Borg ráðherra.
Grænland Netöryggi Netglæpir Danmörk Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira