Handbolti

Vals­menn með þriggja stiga for­skot á toppnum eftir stór­sigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hinn ungi Gunnar Róbertsson var markahæstur í Valsliðinu í kvöld.
Hinn ungi Gunnar Róbertsson var markahæstur í Valsliðinu í kvöld. Vísir/Anton

Valur er komið með þriggja stiga forystu á toppi Olís-deildar karla í handbolta eftir tíu marka útisigur á ÍR í kvöld.

Valsmenn unnu leikinn 41-31 eftir að hafa verið sjö mörkum yfir í hálfleik, 21-14.

Valsmenn hafa náð í 30 stig í deildinni eða þremur meira en FH sem vann nágranna sína í Haukum í þessari umferð.

Valsliðið steinlá á móti Haukum í fyrsta leik eftir EM-fríið en hefur svarað því með þremur sigrum í röð með samtals xx mörkum.

Björgvin Páll Gústavsson varði vel í Valsmarkinu í kvöld eða tuttugu skot en Gunnar Róbertsson var markahæstur með níu mörk og Arnór Snær Óskarsson skoraði átta mörk. Daníel Montoro bætti við fimm mörkum og Andri Finnsson skoraði fjögur mörk.

Bernard Kristján Owusu Darkoh skoraði sex mörk fyrir ÍR en Valsmenn héldu Baldri Fritz Bjarnasyni í aðeins fjórum mörkum. Róbert Snær Örvarsson var næstmarkahæstur með fimm mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×