FIFA lofar að gefa Gazasvæðinu meira en sex milljarða króna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2026 21:33 Gianni Infantino, forseti FIFA og Donald Trump Bandaríkjaforseti þegar Trump fékk friðarverðlaun FIFA. Getty/Tasos Katopodis Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, lofaði á fundi Friðarráðsins að gefa fimmtíu milljónir dala svo hægt sé að byggja nýja fótboltaleikvang á Gazasvæðinu.
Gazasvæðið eru rústir einar, heil borgarhverfi hafa verið sprengd upp í loft og alvarlegar spurningar vakna um enduruppbyggingu grunnvatns- og fráveitukerfa, vega, rafmagnsneta og þeirra mikilvægu innviða sem þarf til að framleiða nægan mat til að koma í veg fyrir útbreitt hungur. En glænýr þjóðarleikvangur í fótbolta á svæði sem hefur verið lagt í rúst eftir meira en tveggja ára stríð milli Ísraels og Hamas? Því er reddað – eða því lofar Alþjóðaknattspyrnusambandið. Stofnfundur Friðarráðs Donalds Trumps Þetta óvenjulega loforð var hluti af stofnfundi Friðarráðs Donalds Trump forseta í Washington á fimmtudag, þar sem níu ríkisstjórnir lofuðu sjö milljörðum dala í hjálparpakka fyrir Gaza og fimm aðrar sögðust myndu senda hermenn sem hluta af alþjóðlegu stöðugleikasveitinni. FIFA and the Board of Peace announce strategic partnership to drive recovery and peace through football⚽️ Comprehensive recovery programme for Gaza, Palestine, combining infrastructure, education and elite development⚽️ 50 FIFA Arena mini-pitches, full-size pitches, a FIFA… pic.twitter.com/mPpfOiIEIk— FIFA Media (@fifamedia) February 20, 2026 „Við þurfum ekki bara að endurbyggja hús eða skóla eða sjúkrahús eða vegi,“ sagði Gianni Infantino, forseti FIFA. „Við þurfum líka að endurbyggja og byggja upp fólk, tilfinningar, von og traust. Og það er það sem fótbolti, mín íþrótt, snýst um.“ Byggja FIFA-akademíu og fótboltavelli FIFA lofaði fimmtíu milljónum dala, meira en sex milljörðum króna, fyrir nýjan leikvang sem rúmar á milli 20.000 og 25.000 áhorfendur og sagðist myndu byggja fimmtán milljóna dala FIFA-akademíu. Samtökin lofuðu einnig að verja 2,5 milljónum dala til viðbótar í 50 „smávelli“ eða fótboltavelli og fimm velli í fullri stærð sem kosta eina milljón dala hver. Gaza er ekki með landslið í fótbolta. Sameinað palestínskt lið er fulltrúi þess og Vesturbakkans og hefur verið viðurkennt af FIFA síðan 1998 en hefur aldrei komist á heimsmeistaramótið. Alheimstungumál heimsins „Fótbolti, eða soccer eins og hann er kallaður hér, er alheimstungumál heimsins,“ sagði Infantino. „Hann snýst um von. Hann snýst um gleði. Hann snýst um hamingju. Hann snýst um að koma saman. Hann snýst um að sameina heiminn.“ FIFA president Gianni Infantino joined Donald Trump’s so-called “Board of Peace” session on Gaza, in Washington, briefly wearing a MAGA-style hat, flagrantly disregarding FIFA’s “political-neutrality” claim he made in 2022. ■ Earlier this week, a coalition of 16 parties,… pic.twitter.com/sd7Fg04LWU— VPol (@VocalPolitics1) February 20, 2026 Hann sýndi myndband þar sem stóð: „Einfaldur bolti. Sameiginlegur völlur. Ástæða til að trúa aftur,“ og benti á að FIFA og Friðarráðið væru að sameina krafta sína til að „breyta fótbolta í brú til friðar, virðingar og vonar.“ Styðja við samfélög og komandi kynslóðir Í myndbandinu var minnst á að FIFA myndi stofna fótboltadeildir á Gaza á unglinga-, áhugamanna- og svæðisstigi og lofað var „fullkomnu fótboltavistkerfi sem er hannað til að styðja við samfélög og komandi kynslóðir.“ Infantino hefur verið tíður gestur í Hvíta húsinu í aðdraganda heimsmeistaramótsins í ár, sem haldið er í sameiningu af Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. Hann birtist einnig oft á viðburðum með Trump þegar forsetinn er á ferðalögum. Hann mætti í Davos í Sviss í síðasta mánuði þegar Friðarráðið – sem er hluti af stærra vopnahléi sem Hvíta húsið miðlaði til að binda enda á átökin á Gaza – var formlega sett á laggirnar. Trump said the US will “bring the United Nations back to health” and improve its HQ, pledging support for Gaza. FIFA will spend $50M on a new stadium, football pitches, and youth programs. pic.twitter.com/zI71pRUZjf— euronews (@euronews) February 20, 2026
FIFA Donald Trump Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Sjá meira