Sigríður Björk og Jón Karl til Bessastaða Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. febrúar 2026 14:06 Nýtt fólk tekur nú til starfa á Bessastöðum. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Sigríður Björk Gunnarsdóttir hefur verið ráðin fjármála- og rekstrarstjóri embættis Forseta Íslands. Ráðningarferli fyrir stöðu sérfræðings hjá embættinu er einnig lokið og var Jón Karl Helgason ráðinn í starfið.
Alls sóttu 52 um starf fjármála- og rekstrarstjóra embættisins en 103 um starf sérfræðings en umsóknarfrestur rann út 17. desember síðastliðinn. Umsækjendum var tilkynnt um miðjan janúar að vegna hins mikla fjölda umsækjenda hefði verið ákveðið að setja úrvinnslu vegna starfs fjármála- og rekstrarstjóra í forgang. Viðtöl væru hafin varðandi það starf. Samkvæmt heimildum Vísis var umsækjendum tilkynnt um það fyrir viku að ráðið hefði verið í starfið. Sigríður Björk Gunnarsdóttir væri nýr fjármála- og rekstrarstjóri embættisins. Sigríður er með grunngráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og kennsluréttindi sem framhaldsskólakennari. Hún hefur starfað sem forstöðumaður rekstrardeildar Póst- og fjarskiptastofnunar, sinnt starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Samgöngustofu og starfar nú sem rekstrarstjóri Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands. Ekki hefur enn verið tilkynnt um ráðningu Sigríðar Bjarkar opinberlega. Það kann að skýrast af því að kærufrestur umsækjenda telji þeir eitthvað athugavert við umsóknarferlið nemur tveimur vikum. Tímabundin ráðning orðin varanleg Jón Karl leysir af hólmi Árna Sigurjónsson sem lét af störfum í desember þegar hann var sjötugur. Starf sérfræðings er ný útfærsla á því starfi. Jón Karl var ráðinn tímabundið í starfið í ágúst og hefur sinnt því síðan. Hann er doktor í samanburðarbókmenntum og hefur starfað hjá Háskóla Íslands meðal annars við íslenskukennslu. Morgunblaðið greindi frá því í janúar að Jón Karl smellpassaði í starfið þegar borin væri saman reynsla hans og menntun við þær kröfur sem settar væru fram til umsækjenda í auglýsingunni. Jón Karl er meðal umsækjendanna 103. Samkvæmt heimildum fréttastofu var ráðningarferlið fyrir sérfræðingsstöðuna nokkuð langt og strangt. Þeir umsækjendur sem komust lengst í ferlinu voru látnir vinna verkefni á dögunum sem sneri meðal annars að því að skrifa ræðu og undirbúa forseta fyrir samtal við leiðtoga annars ríkis. Gæti fengið að ráða aðstoðarmann án auglýsingar Þá er enn óráðið í starf aðstoðarmanns forseta Íslands. Því stöðugildi hefur verið haldið opnu frá því að staða Unu Sighvatsdóttur sem sérfræðings á skrifstofu forseta var lögð niður í fyrra. Una hætti störfum fyrir embættið. Nokkrar breytingar gætu orðið á starfsmannamálum á Bessastöðum verði frumvarp forsætisráðherra sem nú er til meðferðar á Alþingi að lögum. Með því fengi forseti heimild til þess að ráða sér aðstoðarmann án auglýsingar á meðan hann situr í embætti.
Forseti Íslands Vistaskipti Halla Tómasdóttir Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira