Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 19. febrúar 2026 20:44 Þetta blasir við þeim sem heimsækja slóðina. Skjáskot Bandaríska ríkið hefur komið upp vefgátt þar sem Evrópubúar geta skoðað efni sem lokað hefur verið á. Bandaríkjastjórn hefur sakað Evrópuríki um að grafa markvisst undan tjáningarfrelsi í álfunni.
Vefgáttin er hýst á léninu freedom.gov og þar inni á verður Evrópubúum gert kleift að komast hjá ritskoðun hins opinbera til að mynda á hatursorðræðu, hryðjuverkatengt efni og annað slíkt. Síðan er enn sem komið er frekar innantóm. Knapi sem svipar til þjóðhetjunnar Paul Revere að vara heimamenn við komu Bretanna ríður geist yfir skjáinn og á honum miðjum stendur stórum stöfum: „Frelsið kemur. Upplýsingar eru vald. Endurheimtu mannréttindi þín til tjáningarfrelsis.“ Samkvæmt umfjöllun Reuters og Guardian er síðan á vegum utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna en sérstök netöryggisstofnun innan alríkisins er skráð fyrir léninu. Heimildir fréttaveitunnar Reuters herma að til hafi staðið að vígja gáttina á öryggisráðstefnunni í Munchen í síðustu viku en að það hafi tafist sökum óviðráðanlegra aðstæðna. Þetta fyrirtæki Bandaríkjastjórnar mun eflaust ekki vekja fögnuð hinum megin Atlantshafsins enda hvetur það borgara þeirra ríkja beinlínis til lögbrota. Reuters ræddi við upplýsingafulltrúa hjá utanríkisráðuneytinu sem sagði síðuna ekki pillu til Evrópu sérstaklega. „Hins vegar er stafrænt frelsi forgangsmál hjá utanríkisráðuneytinu og það felur í sér útbreiðslu tækni til að vernda friðhelgi einkalífs og komast hjá ritskoðun,“ sagði upplýsingafulltrúinn. Trump-stjórnin hefur farið mikinn í yfirlýsingum sínum í meinta bælingu og kúgun á „þjóðræknum“ stjórnmálaöflum í Evrópu. Hún hefur einnig lýst yfir stuðningi við öfgafulla stjórnarandstöðuflokka um alla álfuna svo sem Valkost fyrir Þýskaland, Rassemblement national í Frakklandi og Endurbótaflokkinn í Bretlandi.
Bandaríkin Tjáningarfrelsi Evrópusambandið Tækni Netöryggi Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira