Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Atli Ísleifsson og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 19. febrúar 2026 07:26 Yoon Suk Yeol tók við embætti forseta Suður-Kóreu árið 2022 en var bolað úr embætti árið 2025. AP Dómstóll í Suður-Kóreu dæmdi í morgun fyrrverandi forseta landsins, Yoon Suk Yeol, í lífstíðarfangelsi fyrir að leggja á ráðin um valdarán í landinu.
Yoon, sem er 65 ára gamall, setti öllum að óvörum herlög í Suður-Kóreu árið 2024 sem færðu honum aukin völd í hendurnar. Þing landsins var þó fljótt að skerast í leikinn og voru herlögin afnumin um sex klukkustundum síðar. Uppþot forsetans hafði hins vegar gríðarleg áhrif á landsmenn og voru skiptar skoðanir um málið. Ríkisstjórnin varð óstarfhæf og flokkur Yoons beið svo afhroð í næstu kosningum. Í frétt AP segir að dómari í málinu hafi sagt í morgun að Yoon og stuðningsmenn hans hefðu eyðilagt stoðir lýðræðisins í landinu en forsetinn fyrrverandi sagðist saklaus af valdaránstilraun, hann hafi aðeins viljað beina athyglinni að óhæfuverkum sem stjórnarandstaðan í landinu væri að fremja. Dómarinn hlustaði ekki á þau rök og dæmdi Yoon í fangelsi til lífstíðar. Búist er við því að dóminum verði áfrýjað alla leið til Hæstaréttar landsins. Yoon er þegar í fangelsi, en hann hafði áður verið dæmdur í sama máli en fyrir aðrar sakir. Nú er hins vegar ljóst að hann fær lífstíðardóm en stuðningsmenn hans hópuðust saman fyrir utan dómsalinn í Seoul í morgun honum til stuðnings. Fleiri fyrrverandi ráðamenn voru einnig dæmdir í morgun fyrir þátt sinn í valdaránstilrauninni, þar á meðal varnarmálaráðherrann Kim Yong-hyun sem fékk þrjátíu ára dóm.
Suður-Kórea Tengdar fréttir Fyrrverandi forseti dæmdur í fimm ára fangelsi Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir misnotkun valds, hindrun framgangs réttvísinnar og fyrir skjalafals í tengslum við misheppnaða tilraun hans til að setja á herlög í landinu árið 2024. Um er að ræða fyrstu dómsuppkvaðninguna yfir forsetanum fyrrverandi, en hann gæti átt yfir höfði sér enn frekari refsingu, jafnvel dauðarefsingu, þar sem enn á eftir að kveða upp úrskurði í þremur málum til viðbótar sem tengjast embættisfærslum forsetans. 16. janúar 2026 08:00 Lögðu lengi á ráðin um herlög Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, ætlaði að nota herlög til að losa sig við pólitíska andstæðinga sína og taka sér aukin völd í landinu. Hann og bandamenn hans í hernum reyndu einnig að auka spennuna milli Suður- og Norður-Kóreu til að réttlæta beitingu herlaga og undirbjuggu áætlun sína í meira en ár. 16. desember 2025 13:26 Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Yoon Suk-yeol, forseti Suður-Kóreu, hefur verið leystur úr embætti af stjórnlagadómstól landsins. Dómstóllinn var einróma í ákvörðun sinni og taldi forsetann hafa brotið gegn stjórnarskránni með yfirlýsingu herlaga í desember. 4. apríl 2025 07:54 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Fleiri fréttir Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Sjá meira
Fyrrverandi forseti dæmdur í fimm ára fangelsi Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir misnotkun valds, hindrun framgangs réttvísinnar og fyrir skjalafals í tengslum við misheppnaða tilraun hans til að setja á herlög í landinu árið 2024. Um er að ræða fyrstu dómsuppkvaðninguna yfir forsetanum fyrrverandi, en hann gæti átt yfir höfði sér enn frekari refsingu, jafnvel dauðarefsingu, þar sem enn á eftir að kveða upp úrskurði í þremur málum til viðbótar sem tengjast embættisfærslum forsetans. 16. janúar 2026 08:00
Lögðu lengi á ráðin um herlög Yoon Suk Yeol, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, ætlaði að nota herlög til að losa sig við pólitíska andstæðinga sína og taka sér aukin völd í landinu. Hann og bandamenn hans í hernum reyndu einnig að auka spennuna milli Suður- og Norður-Kóreu til að réttlæta beitingu herlaga og undirbjuggu áætlun sína í meira en ár. 16. desember 2025 13:26
Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Yoon Suk-yeol, forseti Suður-Kóreu, hefur verið leystur úr embætti af stjórnlagadómstól landsins. Dómstóllinn var einróma í ákvörðun sinni og taldi forsetann hafa brotið gegn stjórnarskránni með yfirlýsingu herlaga í desember. 4. apríl 2025 07:54