Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 18. febrúar 2026 18:32 Margrét Friðriksdóttir í Héraðsdómi Reykjaness á meðan aðalmeðferð í máli hennar fór fram. Vísir/Bjarni Margrét Friðriksdóttir og verjandi hennar Hilmar Garðar Þorsteinsson hafa krafist þess að mál gegn henni vegna ummæla um héraðsdómara verði endurflutt. Dómsuppkvaðningu hefur ítrekað verið frestað umfram þann tímaramma sem lög gera ráð fyrir.
Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Margréti Friðriksdóttur fór fram sextánda janúar og dómsuppkvaðningu hefur verið frestað þrisvar. Lög um meðferð sakamála gera ráð fyrir að dómur sé kveðinn upp innan fjögurra vikna frá því að það var dómtekið nema dómari og málsaðilar telji það óþarft. Það telur Margrét Friðriksdóttir og verjandi hennar ekki og vilja þau meina að nýjar upplýsingar hafi komið fram á við aðalmeðferð málsins og sömuleiðis að vitni sem meinað var að bera vitni í málinu verði leitt fyrir dóm. Sjá einnig: „Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum - Vísir Margrét sakaði þau Barböru Björnsdóttur og Símon Sigvaldason um að hafa átt í ástarsambandi á meðan þau voru bæði dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur. Margrét segist vilja að Sigríður Hjaltested, einnig dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, verði kölluð fyrir sem vitni en nafn hennar kom upp í vitnaskýrslu Barböru þar sem hún sagði ásakanir Margrétar á hendur sér mætti rekja til þess að Sigríður hefði lagt sig í áratugalangt einelti og borið út lygasögur um sig. „Hafi dómur ekki verið kveðinn upp í máli sem var munnlega flutt innan fjögurra vikna frá því að það var dómtekið skal það flutt að nýju nema dómari og aðilar telji það óþarft,“ segir í 184. grein laga um meðferð sakamála og erfitt að túlka það á annan hátt en að dómara sé skylt að taka málið upp að nýju.
Dómsmál Meiðyrðamál Margrétar Friðriksdóttur Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira