Innlent

Rúta hafnaði utan vegar og valt

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Mynd er úr safni.
Mynd er úr safni.

Lítil rúta með sjö farþega fór út af vegi og valt austan við Kirkjubæjarklaustur í morgun. Farþegar voru fluttir á heilsugæslustöð á Kirkjubæjarklaustri með minniháttaráverka. Mikil hálka er á Suðurlandi og er hringvegurinn lokaður milli Klausturs og Freysness.

Þorsteinn M. Magnússon aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi staðfestir í samtali við Vísi en mbl.is greindi fyrst frá. Þorsteinn segir mildi að ekki hafi farið verr, leiðindaveður sé nú á þessum slóðum.

„Það er bara hálkuástand á flestum stöðum á Suðurlandi núna og við brýnum fyrir fólki að vera ekki að fara, taka mark á lokunum og öðru slíku, það er ástæða fyrir því að þær eru í gildi.“

Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×