Ronda snýr aftur í búrið á Netflix Henry Birgir Gunnarsson skrifar 17. febrúar 2026 15:01 Þetta verður áhugavert bardagakvöld. mynd/netflix Þekktasta bardagakona allra tíma, Ronda Rousey, snýr aftur í búrið í vor.
Ronda mun mæta Ginu Carano þann 16. maí en bardagakvöldið verður fyrsta MMA-bardagakvöldið sem er sýnt á Netflix streymisveitunni. Bardagi þeirra verður aðalbardagi kvöldsins. Um er að ræða fimm lotu bardaga í fjaðurvigt. Bardagakvöldið fer fram í Los Angeles. Það er fyrirtæki hins umdeilda Jake Paul, Most Valuable Promotions eða MVP, sem á veg og vanda að þessu kvöldi. Eftir á að kynna aðra bardaga kvöldsins. Rousey er orðin 39 ára gömul og hefur ekki barist síðan í lok árs árið 2016. Þá rotaði Amanda Nunes hana. Rúmu ári áður hafði Rousey tapað fyrir Holly Holm. Þó svo Rousey hafi rutt brautina fyrir aðrar konur í MMA þá telja margir að hún hafi ekkert að gera í MMA-konur nútímans. Þær séu einfaldlega miklu betri. Þá er hentugt að andstæðingurinn sé hin 43 ára gamla Carano sem var stærsta kvennastjarnan í MMA áður en Ronda mætti og tók yfir sviðið. Árið 2007 barðist Carano í fyrsta kvennabardaganum sem var sýndur í sjónvarpi á Showtime. Hún braut fyrstu múrana áður en Ronda mætti og valtaði yfir alla hina. Síðasta bardagi Carano var árið 2009 er hún tapaði gegn Cris Cyborg. Það er eina tapið hennar á ferlinum en hún barðist reyndar aðeins átta sinnum.
MMA Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjá meira