Tækifæri til að minnka þörf á hjúkrunarrýmum Guðlaugur Eyjólfsson skrifar 17. febrúar 2026 09:15 Á sama tíma og við leitum leiða til að fjölga hjúkrunarrýmum þurfum við einnig lausnir sem minnka þörf á hjúkrunarrýmum í framtíðinni. Alzheimersamtökin reka Seigluna, sem er úrræði ætlað einstaklingum á fyrstu stigum heilabilunar. Í Seiglunni er lögð áhersla á að tryggja líkamlega, vitræna og félagslega virkni þjónustuþega, sem rannsóknir hafa sýnt fram á að geti hægt á framgangi sjúkdómsins, minnkað einkenni og aukið lífsgæði. Í dag sækja um 50 einstaklingar þjónustu í Seiglunni og eru yfir 100 einstaklingar á biðlista eftir plássi. Á meðan þau bíða missa þau hratt færni og hafa því fyrr þörf fyrir hjúkrunarrými og í lengri tíma. Tryggja þarf fjármagn til þess að opna annað úrræði líkt og Seiglan sem allra fyrst, því til viðbótar við þau auknu lífsgæði þeirra sem sækja Seigluna og aðstandenda þeirra, er ávinningurinn samfélagslega mikill. Með úrræðum eins og Seiglunni styttum við þann tíma sem einstaklingar með heilabilun hafa þörf fyrir hjúkrunarrými. Einn mánuður í hjúkrunarrými kostar jafn mikið og 12 mánuðir í Seiglunni fyrir hvern einstakling. Fjárhagslegur ávinningur samfélagsins er því borðleggjandi og augljós! Höfundur er framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eldri borgarar Hjúkrunarheimili Mest lesið Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 25.07.2026 Halldór Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Sjá meira
Á sama tíma og við leitum leiða til að fjölga hjúkrunarrýmum þurfum við einnig lausnir sem minnka þörf á hjúkrunarrýmum í framtíðinni. Alzheimersamtökin reka Seigluna, sem er úrræði ætlað einstaklingum á fyrstu stigum heilabilunar. Í Seiglunni er lögð áhersla á að tryggja líkamlega, vitræna og félagslega virkni þjónustuþega, sem rannsóknir hafa sýnt fram á að geti hægt á framgangi sjúkdómsins, minnkað einkenni og aukið lífsgæði. Í dag sækja um 50 einstaklingar þjónustu í Seiglunni og eru yfir 100 einstaklingar á biðlista eftir plássi. Á meðan þau bíða missa þau hratt færni og hafa því fyrr þörf fyrir hjúkrunarrými og í lengri tíma. Tryggja þarf fjármagn til þess að opna annað úrræði líkt og Seiglan sem allra fyrst, því til viðbótar við þau auknu lífsgæði þeirra sem sækja Seigluna og aðstandenda þeirra, er ávinningurinn samfélagslega mikill. Með úrræðum eins og Seiglunni styttum við þann tíma sem einstaklingar með heilabilun hafa þörf fyrir hjúkrunarrými. Einn mánuður í hjúkrunarrými kostar jafn mikið og 12 mánuðir í Seiglunni fyrir hvern einstakling. Fjárhagslegur ávinningur samfélagsins er því borðleggjandi og augljós! Höfundur er framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna.
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir Skoðun