Milljarðar í stjórnsýslu eða í þjónustu? Gunnar Salvarsson skrifar 17. febrúar 2026 07:45 Ég verð hvorki sá fyrsti né sá síðasti sem bendir á það augljósa: sameining sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu er skynsamleg. Hún fæli í sér ábyrga ákvörðun um að draga úr gegndarlausri sóun á almannafé og gera sveitarstjórnarstigið skilvirkara. Umræðan um sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu ætti ekki að snúast um hugmyndafræði eða hápólitískar stefnur. Hún snýst um skipulag opinberrar þjónustu á einu samfelldu þéttbýlissvæði þar sem meirihluti landsmanna býr. Spurningin er einföld: er núverandi fyrirkomulag hagkvæmt og skilvirkt fyrir íbúana? Helsti vandinn við að koma þjóðþrifamáli sem þessu í framkvæmd er ekki skortur á rökum, heldur skortur á pólitískum vilja. Flokkarnir myndu sjálfir missa fjölda bæjar- og borgarfulltrúa við sameiningu. Eftir stendur þó spurningin: eiga stjórnmálaflokkar ekki að þjóna almannahagsmunum fremur en eigin hagsmunum? Hvert væri næsta skref? Skynsamlegast og eðlilegast væri að láta gera óháða og faglega úttekt á kostnaði og ávinningi sameiningar, raunhæfa hagkvæmnisathugun. Fjölmiðlar mættu einnig, í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga, spyrja fulltrúa flokkanna beint um afstöðu þeirra. Telja þeir sameiningu skynsamlega í ljósi mögulegs sparnaðar og aukinnar skilvirkni? Og ef ekki – hver eru rökin? Meginhlutverk sveitarfélaga er skýrt. Þau eiga að tryggja öfluga og vandaða leik- og grunnskóla, sinna skipulagi og gatnagerð, reka félagsþjónustu og halda úti þeim innviðum sem daglegt líf byggir á. Þetta eru framkvæmdaverkefni sem krefjast fagmennsku, aga í rekstri og skýrrar ábyrgðar. Íbúar meta þjónustuna út frá því hvort hún virkar. Í grunninn ætti rekstur sveitarfélaga því ekki að ráðast af pólitískri hugmyndafræði. Það má jafnvel færa rök fyrir því að óháðir, borgaralegir listar ættu að vera fleiri í sveitarstjórnarkosningum en raun ber vitni. Á höfuðborgarsvæðinu starfa sjö sveitarfélög – Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Seltjarnarnes og Kjósarhreppur – hvert með eigið stjórnkerfi, yfirstjórn og nefndakerfi, þótt um eitt samfellt búsetu- og atvinnusvæði sé að ræða. Þessi margskipta og dreifða stjórnsýsla bindur fjármuni sem mætti verja í grunnþjónustu, sömu þjónustu og fulltrúar sveitarfélaganna segja reglulega skorta fjármagn til að veita. Líklegt er að hagkvæmnisathugun myndi leiða í ljós að sameining gæti skilað verulegum sparnaði sem nýta mætti til að bæta þjónustu, styrkja leik- og grunnskóla og efla þjónustu við aldraða og fólk með fötlun, svo einhver dæmi séu nefnd. Sameining myndi ekki skerða þjónustu, en hún gæti dregið úr tví- og sjöverknaði og skapað stærðarhagkvæmni í yfirstjórn, stoðþjónustu og innkaupum. Samræmd stefnumótun gæti minnkað ágreining og tafir sem í dag kosta bæði tíma og fé. Annað veifið á síðustu áratugum hefur hugmyndinni verið hreyft, en ekkert gerst. Ég geri mér fullljóst að sameining myndi hafa mikil áhrif og fækka kjörnum fulltrúum og bæjarstjórum. Slíkar breytingar mæta eðlilega tregðu innan stjórnsýslu og stjórnmálaflokka. En sveitarfélög eru ekki til fyrir kerfið sjálft. Þau eru til fyrir íbúana. Í fyrri grein minni um málið var fjallað um fjárhagsleg og stjórnsýsluleg rök fyrir sameiningu. Þau standa óhögguð. Það þarf einfaldlega að láta reyna á hvort hagsmunir íbúanna vega þyngra en hagsmunir kerfisins og stjórnmálaflokkanna. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Sjá meira
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir Skoðun