Klúðraði gullinu, henti frá sér öllu lauslegu og strunsaði út í skóg Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2026 14:32 Atle Lie McGrath tók mistökum sínum afar illa og strunsaði út í skóg. Getty/Christian Petersen Norski skíðamaðurinn Atle Lie McGrath klúðraði seinni svigferðinni sinni á Vetrarólympíuleikunun eftir að hafa verið með forystu eftir fyrri umferðina. Hann tók vonbrigðunum vægast sagt mjög illa.
McGrath gerði mistök og keyrði út úr brautinni í seinni umferðinni. Rétt eftir að hann keyrði út úr brautinni henti hann frá sér stöfunum, reif af sér skíðin og hljóp út úr brautinni og í átt að skóginum. Við tókum fáránlegar myndir af íþróttamanni á Ólympíuleikunum ganga af göflunum við þessi risastóru vonbrigði. Norsku lýsendurnir gagnrýndu líka hegðun McGrath. „Hversu langt ætlar hann að ganga? Þetta eru ansi fáránlegar myndir af vonbrigðum,“ sagði Carl Andreas Wold, lýsandi alpagreina hjá NRK. Lagðist í snjóinn og starði upp í himininn Myndavélin hélt áfram að taka upp McGrath. Rétt við skógarrunnann lagðist McGrath í snjóinn og starði upp í himininn. Fljótlega kom vélsleði upp í skógarrunnann til að athuga hvort allt væri í lagi með Norðmanninn. @tntsports Absolute heartbreak for Atle Lie McGrath 💔 He throws his skis in the air, storms off and has a lie down in the snow to process the mistake that lost his shot at Olympic gold 😲💥 #milanocortina2026 #WinterSports #Olympics ♬ original sound - TNT Sports „Ég var í nákvæmlega sömu stöðu fyrir átta árum. Ég var með ágætis forystu á Myhrer og keyrði út úr í kringum fyrsta millitímann líka. Þetta eru svolítið blendnar tilfinningar fyrir bæði Timon og Atle. Ég hugsa líka um hvar við hefðum getað verið ef hlutirnir hefðu gengið upp. Á svolítið slæmum degi er ég með smá forskot og tek brons. En við vorum auðvitað hér til að taka gullið,“ sagði bronsverðlaunahafinn og landi hans Henrik Kristoffersen við NRK. „Maður verður alveg tómur“ „Maður verður alveg tómur. Það er erfitt að lýsa því. Þetta er svo sárt. Að vera með forystu á Ólympíuleikum og ég veit hvað hann hefur verið stressaður. Hann hlýtur að hafa verið svo stressaður frá byrjun. Þetta er alveg hræðileg tilfinning. Maður er lasinn og með ógleði og vill bara að dagurinn sé búinn,“ sagði Timon Haugan, sem varð í fjórða sæti, og bætir við: „Ég er mjög leiður fyrir hönd Atles,“ sagði Haugan. Var är han på väg!? 👀 Norske Atle Lie McGrath gränslar en port, bommar OS-guldet och ger sig av till skogs medan det schweiziska teamet jublar vilt.📲 Streama hela OS i Milano Cortina 2026 på HBO Max och se det bästa på Eurosport 1. pic.twitter.com/MYtTpMZq9k— Sports on HBO Max 🇸🇪 (@sportshbomaxse) February 16, 2026
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Meiri hraði á HM en tímasóun ekki alveg úr sögunni Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Ferðaðist ekki með liðinu Hver er flottasta treyjan á HM? Suður-Kórea byrjar heimsmeistaramótið vel Þá roðnaði Beckham Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Dagskráin: Stærsta boxmót ársins á Íslandi Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Jesús áfram í Stjörnunni Bestu-deildarpar á von á barni saman Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Ísland og Argentína hækkuðu sig bæði á FIFA-listanum Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Mourinho skrifaði undir þriggja ára samning Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Danir munu liggja í því á Icebox Gaslýsingar, starfsöryggi og heimskt lið Sjá meira