Lögga ákærð fyrir leit án heimildar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 16. febrúar 2026 14:11 Það heyrir til tíðinda þegar lögreglumaður er ákærður fyrir brot í opinberu starfi. Vísir/Vilhelm Lögreglumaður hefur verið ákærður fyrir brot í opinberu starfi fyrir að hafa í tvígang sumarið 2025 farið inn í íbúð án samþykkis eigenda og úrskurðar dómara. Þannig hafi hann ekki gætt lögmætra aðferða í starfi sínu.
Málið er til meðferðar hjá Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem það var þingfest í morgun. Um er að ræða tvö brot með tveggja daga millibili í júlí 2025. Friðrik Smári Björgvinsson saksóknari í málinu segir að aðalmeðferð í málinu hafi verið ákveðin í maí. Það þýðir að lögreglumaðurinn neitar sök miðað við ákæru. Lögreglumaðurinn er annars vegar ákærður fyrir brot í opinberu starfi með því að hafa mánudaginn 21. júlí opnað útidyrahurð efri hæðar í ónefndu húsi með lykli sem hann lagði hald á með ólögum, og farið þar inn án samþykkis eigenda eða leigutaka eða úrskurðar dómara og þannig ekki gætt lögmætra aðferða við leit. Svo er hann hins vegar ákærður fyrir brot í opinberu starfi með því að hafa miðvikudaginn 23. júlí farið inn í íbúð án samþykkis eigenda eða úrskurðar dómara og hafið þar leit og þannig ekki gætt lögmætra aðferða við beitingu rannsóknaraðgerðar. Málin teljast varða 131. og 132. grein almennra hegningarlaga. Brot við fyrri greininni varðar allt að þriggja ára fangelsi en hámarksrefsing fyrir síðara brotið varðar að hámarki eins árs fangelsi.
Lögreglan Dómsmál Lögreglumál Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira