Gerðu góða ferð yfir litla beltið Valur Páll Eiríksson skrifar 15. febrúar 2026 17:03 Elías Rafn hélt hreinu í góðum sigri Midtjylland. Getty/Archivio Massimo Landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson varði mark Midtjylland í 4-1 sigri á OB á útivelli í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Midtjylland er í harðri baráttu á toppi deildarinnar og þurfti sigur í þeirri baráttu í dag. Liðið fór yfir Litlubeltisbrúna frá Jótlandi til Fjóns er það sótti OB heim til Óðinsvéa. Hann var aldrei í mikilli hættu en staðan var orðin 2-0 innan átta mínútna þökk sé mörkum Philips Billing, fyrrum leikmanns Bournemouth á Englandi, og Brassans Júnior Brumado. Brumado bætti tveimur mörkum við fyrir hlé, og hafði því skorað þrennu er Midtjylland fór með 4-0 forystu til búningsherbergja. Sá brasilíski fór svo meiddur af velli í hálfleiknum en hafði skilað fínasta dagsverki. Elíasi tókst ekki að halda hreinu þar sem OB minnkaði muninn með marki Súrínamans Jay Roy Grot fljótlega eftir hléið. Landsliðsmarkvörðurinn átti þó fínasta leik og varði þrjú skot úr vítateignum í leik dagsins. Midtjylland lauk þá leiknum manni færri vegna rauðs spjalds Króatans Martin Erlic sem hann hlaut eftir að hafa brotið af sér sem aftasti maður á 81. mínútu. Það breytti þó litlu um niðurstöðuna og Midtjylland vann 4-1 sigur. Midtjylland er með 42 stig í öðru sæti deildarinnar eftir sigurinn, tveimur stigum á eftir AGF sem er á toppnum. Bröndby er í þriðja sæti heilum tíu stigum á eftir Elíasi og félögum. OB er með 26 stig í áttunda sæti.
Danski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Fleiri fréttir Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjá meira