Forsætisráðherra fjarlægist atvinnulífið Bergþór Ólason skrifar 15. febrúar 2026 07:32 Viðskiptaþing var haldið í liðinni viku. Margt var þar góðra og efnismikilla erinda og sérstaklega var gaman að sjá Friðrik Sophusson á sviði, þar sem hann ræddi hvernig Viðeyjarstjórnin og arftaki hennar gerðu hér grundvallarbreytingar sem skiluðu aukinni hagsæld á Íslandi. Til fundarins mætti sömuleiðis forseti Íslands, Halla Tómasdóttir. Samtal hennar við Andra Guðmundsson, formann Viðskiptaráðs, var áhugavert og sýndi að forseti Íslands víkur sér ekki undan því að styðja við íslenskt atvinnulíf. Atvinnulíf sem er grundvöllur þeirrar velferðar sem við viljum viðhafa sem þjóð. En tilefni komu forsetans á Viðskiptaþing var ekki eins gleðilegt og vera forsetans þar varð þeim sem þingið sóttu. Ástæðan var að forsætisráðherra hafnaði því að mæta á Viðskiptaþing, en löng hefð er fyrir því að forsætisráðherrar mæti til þingsins. Ástæðan var ekki sú að forsætisráðherra væri staddur erlendis, eða á leið þangað. Ástæðan var ekki sú að stórir viðburðir væru að rekast á. Nei, ástæðan var sú að „forsætisráðherra þyrfti að forgangsraða tíma sínum“ og „gæti ekki mætt hjá öllum hagsmunaaðilum sem eftir því óskuðu“. Menn skilja flestir fyrr en skellur í tönnum. Það hafa þeir allir þurft að gera á fyrri stigum forsætisráðherrarnir, að forgangsraða. Hvort sem það var Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Geir Haarde eða aðrir þar á undan. Meira að segja Jóhanna Sigurðardóttir mætti á Viðskiptaþing. En nei, nú er öldin önnur. Forsætisráðherra forgangsraðar tíma sínum þannig að við blasir að atvinnulífið er hornreka. Það hefur svosem verið ljóst okkur sem sitjum á Alþingi, enda leitun að þeim anga atvinnulífsins sem ekki hefur orðið fyrir árás ríkisstjórnarinnar á þessu rúma ári sem hún hefur starfað. En það er eins og það hafi verið sérstakt markmið forsætisráðherra að draga upp þá mynd að viðskiptalífið væri ekki viðlitsins virði nú um stundir. Af fréttum að dæma virðist fátt stórra verkefna hafa rekist á fundinn í Borgarleikhúsinu. Helstu verkefnin í forsætisráðuneytinu þessa dagana virðast helst vera að styðja við hliðarveruleikaumræðuna þar sem; verðbólga er að lækka, vextir eru á hraðri niðurleið, húsnæðismálinu í toppstandi og staða landamæranna trygg. Í salnum sem hún vék sér undan að mæta í var venju fremur hátt hlutfall gesta sem veit að staðan í hliðarveruleika ríkisstjórnarinnar er önnur en í raunheimum okkar hinna. Sennilega veit forsætisráðherra það og ákvað því að vera frekar í hvarfi á skrifstofu sinni en að eiga orðastað við atvinnulífið í liðinni viku. Höfundur er þingmaður Miðflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bergþór Ólason Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar