Sport

Fór í fýlu og hætti áður en hann vann sögu­legt Ólympíugull

Valur Páll Eiríksson skrifar
Braathen fagnaði vel í dag.
Braathen fagnaði vel í dag. Christian Petersen/Getty Images

Lucas Pinheiro Braathen vann fyrsta Ólympíugull Brasilíu í sögu Vetrarleika í dag. Hann fagnaði sigri í stórsvigi þar sem okkar maður Jón Erik Stefánsson var á meðal keppenda.

Braathen á norskan föður en brasilíska móður og er fæddur og uppalinn í Osló. Hann tók í fyrsta sinn þátt á HM í alpagreinum 18 ára gamall árið 2018 fyrir skíðalið Bærum og keppti fyrir Noreg á Vetrarólympíuleikunum árið 2022 í Peking.

Braathen lenti hins vegar í útistöðum við norska skíðasambandið vegna styrktarsamninga og tilkynnti í október 2023 að hann væri hættur skíðaiðkun, degi áður en heimsbikarmótaröð þess tímabils hófst.

Í mars árið eftir tilkynnti hann að hann væri hættur við að hætta. Hann myndi keppa fyrir Brasilíu í stað Noregs og ári eftir upprunalegu yfirlýsinguna, í október 2024, mætti hann aftur til leiks á heimsbikarmótaröðina, í þetta sinn undir fána Brasilíu.

Hann hefur vakið athygli á leikunum í ár heima fyrir, enda ekki á hverjum degi sem Brassar eiga frambærilegan skíðamann. Fótboltastjörnur þar suðurfrá sendu Braathen góðar kveðjur fyrir keppni dagsins og hann stóð fyrir sínu.

Fyrri ferð hans var á meðal þeirra betri sem sést hafa og var hann með tæplega sekúndu forskot á næstu keppendur fyrir síðari ferð dagsins í stórsvigi í Stelvio-brekkunni í Ölpunum.

Síðari ferðin var ekki sú besta í brekkunni eftir hádegið en forskotið frá fyrri hlutanum skilaði Braathen Ólympíugulli, því fyrsta í sögu Brasilíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×